Jón Þór og Bára keppa í München á morgun
Jón Þór Sigurðsson og Bára Einarsdóttir keppa í 50 metra liggjandi riffli (50m prone) á Grand Prix mótinu í München á morgun 22.maí. Hægt er að fylgjast með á þessari slóð.
Jón Þór Sigurðsson og Bára Einarsdóttir keppa í 50 metra liggjandi riffli (50m prone) á Grand Prix mótinu í München á morgun 22.maí. Hægt er að fylgjast með á þessari slóð.
Jón Þór Sigurðsson hafnaði í 50.sæti af 89 keppendum á mjög öflugu stórmóti í Hannover í Þýskalandi, í 50 metra liggjandi riffli (50m Rifle Prone). Skorið var 612,7 stig sem er langt frá hans besta árangri en Íslandsmet hans er 623,7 stig síðan 2016. Hægt er að skoða úrslitin nánar á þessari slóð.
Ásgeir Sigurgeirsson var að ljúka keppni á Heimsbikarmótinu í Fort Benning í USA. Hann hafnaði í 22.sæti í loftskammbyssu með 574 stig. Til þess að komast í átta manna úrslit þurfti 579 stig að þessu sinni. Keppendur voru all 51 talsins.
Opna ISCH mótið í Hannover hófst í dag. Við eigum þar einn keppanda, Jón Þór Sigurðsson, en hann keppir í 50 metra liggjandi riffli (50m prone). Hann keppir á föstudaginn 11.maí. Upplýsingar munu birtast á þessari slóð.
Heimsbikarmótið í Fort Benning í Bandaríkjunum hófst í dag. Ásgeir Sigurgeirsson keppir þar í loftskammbyssu á morgun, miðvikudag, í loftskammbyssu. Hann byrjar keppni kl.17:00 að íslenskum tíma. Hægt er að fylgjast með á þessari slóð.
Jórunn Harðardóttir var að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu í loftskammbyssu í Györ í Ungverjalandi. Hún hafnaði í 54.sæti af 72 keppendum. Skorið var 554 stig (89-91-94-93-90-97 og 15x-tíur). Íslandsmet hennar sem hún setti á RIG-leikunum í Reykjavík er 557 stig.
EM í loftbyssugreinunum í Ungverjalandi í gangi núna. Okkar keppendur í góðum gír. Ásgeir Sigurgeirsson og Jórunn Harðardóttir lentu í 37.sæti af 50 liðum í parakeppninni á Evrópumeistaramótinu í dag. Þau keppa í einstaklingskeppninni á morgun.
Ísland á tvo keppendur á Evrópumeistaramótinu í loftbyssugreinunum sem fram fer þessa dagana í Györ í Ungverjalandi. Jórunn Harðardóttir keppir í loftskammbyssu á laugardaginn kl. 08:30 að íslenskum tíma. Tengill á skortöfluna er hérna. Ásgeir Sigurgeirsson keppir einnig í loftskammbyssu á laugardaginn en hann byrjar keppni kl. 11:00 að íslenskum tíma. Skortafla karlakeppninnar er hérna. [...]
Evrópumótið í loftskammbyssu og loftriffli er nú að hefjast í Györ í Ungverjalandi. Ísland á þar tvo keppendur, Ásgeir Sigurgeirsson í loftskammbyssu karla og Jórunni Harðardóttur í loftskammbyssu kvenna. Ennig keppa þau blandaðri liðakeppni þar sem kona og karl skipa lið. Þau enduðu í 10.sæti í liðakeppninni á síðasta EM og vantaði þá aðeins 1 [...]
Jón Þór Sigurðsson hafnaði í 8.sæti í 50 metra liggjandi riffli á Evrópumeistaramótinu í Bakú í Azerbaijan. Jón komst þarna í úrslit á stórmóti í fyrsta skipti á ferlinum en náði ekki að velgja keppinautum sínum frekar undir uggum. Þess má geta að keppendur voru 68 talsins í þessari grein.
Jórunn Harðardóttir og Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur voru rétt í þessu að ljúka keppni í parkeppni á Evrópumeistaramótinu í Maribor þau kepptu þar í loftskammbyssu. Þau enduðu í 10. sæti í þeirri keppni af 28 liðum sem þátt tóku. Þau voru grátlega nærri því að komast í úrslitin. Þau voru með samanlagt 477 stig [...]
Ásgeir Sigurgeirsson komst í dag í úrslit á Evrópumeistaramótinu í Maribor í Slóveníu. Hann átti mjög góðan endasprett en hann endaði á 578 stigum (93 98 99 95 94 99) og 18x-tíur ! Hann endaði svo í 7.sæti af 68 keppendum að þessu sinni. Hann er í hörkuformi og er vonandi tilbúinn í átök næstu [...]