Keppt er í Loftskammbyssu á Ólympíuleikum, Heimsmeistaramótum, Evrópumótum, Norðurlandamótum, og Smáþjóðaleikum. Hér heima á öllum mótum STÍ í skammbyssugreinum auk innanfélagsmóta.

Aldur: 22 ára til að fá leyfi fyrir eigin byssu en 15 ára til æfinga hjá íþróttafélögum

Byssur: þrýstilofts- eða kolsýrubyssur cal .177 (4.5mm). Yfirleitt sérhannaðar keppnisbyssur. Heildarþyngd ekki meiri en 1500gr og gikkþungi lágmark 500gr. Byssan þarf að rúmast í kassa sem er 420x200x50mm

Búnaður: Hlífðargleraugu, oft sérhönnuð skotgleraugu, Heyrnarhlífar og gjarnan sjónauki. Sérhannaðir skotskór eru oft notaðir. Skot og skotskífur.

Færi: 10 metrar

Keppni: Venjulega skotið einu til tveimur skotum á hverja skífu. Hvert skot gefur frá 0 og upp í 10 stig í undankeppni. 8 bestu karlar og 8 bestu konur keppa svo í final til úrslita. Í final er skotið 10 skotum, einu á hverja skífu. Hvert skot gefur frá 0 og upp í 10,9 stig. Þ.e. árangur er mældur með aukastaf eftir því hve innarlega í hverjum hring skotið liggur. Árangur í final er svo lagður við árangur í undankeppni.

Konur: 40 skot. Öllum skotum skotið á innan við 50 mín.

Karlar: 60 skot. Öllum skotum skotið á innan við 1 klst og 15 mín.

Félög: Skotfélag Reykjavíkur, Skotfélag Kópavogs,  Skotfélag Akraness, Skotfélag Vesturlands, Skotfélag Akureyrar, Skotdeild Keflavíkur.

Keppnir: Ca. einu sinni í mánuði á tímabilinu 1. sept til 1. Júní

Annað: Tiltölulega auðvelt fyrir einstaklinga að koma sér upp aðstöðu til æfinga þar sem færið er einungis 10 m, hávaði nánast enginn og mengun engin.