300 metra Frjálsriffill

Keppt er í 300 m. á Heimsmeistaramótum, Evrópumótum og Norðurlandamótum. Hér heima á  innanfélagsmótum.

Aldur: 21 árs til að fá leyfi fyrir eigin byssu.

Byssur: Notaðir eru rifflar með allt að 8mm hlaupvídd einskota rifflar, yfirleitt sérhannaðir. Riffillinn má vera mest 8 kg en 6,5 kg í kvennaflokki.

Búnaður: Sérsaumaðir jakkar, buxur og skór. Hlífðargleraugu, oft sérhönnuð skotgleraugu, Heyrnarhlífar og skoðunarsjónauki. Skot og skotskífur.

Færi: 300 metrar

Keppni: Venjulega skotið einu til tveimur skotum á hverja skífu. Hvert skot gefur frá 0 og upp í 10 stig í undankeppni. 8 bestu karlar og 8 bestu konur keppa svo í final til úrslita. Í final er skotið 10 skotum, einu á hverja skífu. Hvert skot gefur frá 0 og upp í 10,9 stig. Þ.e. árangur er mældur með aukastaf eftir því hve innarlega í hverjum hring skotið liggur. Árangur í final er svo lagður við árangur í undankeppni.

Skotin eru 60 skot + ótakmarkaður fjöldi af upphitunarskotum. Öllum skotum skal skotið á innan við 105 mínútum.

Félög: Skotfélag Reykjavíkur, Skotdeild Keflavíkur ofl.

Keppnir: Aðallega innanfélagsmót en oftast Íslandsmót að hausti.

Annað: Erlendis er einnig keppt í Þríþraut með þessum rifflum og gilda þá sömu tímamörk og í Þríþraut 3×40 með cal.22 rifflum.

Click edit button to change this text.