Þrístaða 3 x 20 skot

Keppt er í Þríþraut á Ólympíuleikum, heimsmeistaramótum, Evrópumótum, Norðurlandamótum, og smáþjóðaleikum. Hér heima á öllum mótum STÍ í auk innanfélagsmóta.

Aldur: 20 ára til að fá leyfi fyrir eigin byssu en 15 ára til æfinga hjá íþróttafélögum

Byssur: Notaðir eru 22ja kalibera einskota rifflar, yfirleitt sérhannaðir. Í karlaflokki má riffillinn vera mest 8 kg en 6,5 kg í kvennaflokki.

Búnaður: Sérsaumaðir jakkar, buxur og skór. Hlífðargleraugu, oft sérhönnuð skotgleraugu, Heyrnarhlífar og skoðunarsjónauki. Skot og skotskífur.

Færi: 50 metrar

Keppni: Venjulega skotið einu til tveimur skotum á hverja skífu. Hvert skot gefur frá 0 og upp í 10 stig í undankeppni. 8 bestu karlar og 8 bestu konur keppa svo í final til úrslita. Í final er skotið 10 skotum, einu á hverja skífu. Hvert skot gefur frá 0 og upp í 10,9 stig. Þ.e. árangur er mældur með aukastaf eftir því hve innarlega í hverjum hring skotið liggur. Árangur í final er svo lagður við árangur í undankeppni.

Skotin eru 3 x 20 skotum .  Tímamörkin eru 45 mínútur í liggjandi stöðu, 1 klst og 15 mínútur í krjúpandi og svo 1 klst í standandi stöðu.

Félög: Skotfélag Reykjavíkur, Íþróttafélagið Leiftri, Skotfélag Kópavogs, Íþróttaskotfélag Akureyrar,  Skotfélag Ólafsfjarðar, Skotfélag Akureyrar, Skotdeild Keflavíkur.

Keppnir: A.m.k. eitt mót , Íslandsmót að vori.

Click edit button to change this text.