Compak Sporting Alþjóðareglurnar 2021

  • Keppt er í Compak Sporting á Heimsmeistaramótum og Evrópumótum. Hér heima á mótum STÍ auk innanfélagsmóta.
  • Aldur: 20 ára til að fá leyfi fyrir eigin byssu en 15 ára til æfinga hjá íþróttafélögum
  • Byssur: Oftast tvíhleyptar yfir undir haglabyssur en einnig er leyfilegt að nota hálfsjálfvirkar haglabyssur en þá skal magasínið þrengt þannig að það taki ekki nema 1 skot.
  • Búnaður: Hlífðargleraugu, oft sérhönnuð skotgleraugu, heyrnarhlífar og skotvesti. Skot og leirskífur.
  • Færi: Breytilegt
  • Keppni: Skotið er á leirdúfur sem kastað er með a.m.k. 6 sjálfvirkum kastvélum. Skotið er alls 100 eða 200 skotum eftir stærð móta.
  • Félög: Skotfélag Reykjavíkur, Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar, Skotíþróttafélag Suðurlands,  Skotfélag Ólafsfjarðar, Skotfélag Akureyrar, Skotdeild Keflavíkur, Skotfélagið Markviss ofl.
  • Keppnistímabil:  1. apríl til 1. október.

Click edit button to change this text.