Ásgeir Sigurgeirsson keppir á morgun föstudag í loftskammbyssu á Heimsbikarmótinu í München og hefst hans riðill kl. 06:45  að íslenskum tíma. Hægt er að fylgjast með honum á þessari slóð. Jórunn Harðardóttir keppir í loftskammbyssu á sunnudaginn og byrjar keppnin kl. 09:15 að íslenskum tíma og hægt að fylgjast með henni hérna.  Þau taka svo þátt í parakeppninni á mánudaginn og hefst keppnin þá kl. 09:45 og hægt að fylgjast með hérna.