Ásgeir Sigurgeirsson komst í dag í úrslit á Evrópumeistaramótinu í Maribor í Slóveníu. Hann átti mjög góðan endasprett en hann endaði á 578 stigum (93 98 99 95 94 99) og 18x-tíur !
Hann endaði svo í 7.sæti af 68 keppendum að þessu sinni. Hann er í hörkuformi og er vonandi tilbúinn í átök næstu missera við að tryggja sér þátttökurétt á næstu Ólympíuleikum sem haldnir verða í Japan 2020