Ásgeir lauk keppni með 576 stig
Ásgeir Sigurgeirsson endaði í 35.sæti af 97 keppendum á heimsbikarmótinu í Peking í Kína í nótt. Hann náði 576 stigum (95-97-98-95-96-95) og 15 x-tíur.
Ásgeir Sigurgeirsson endaði í 35.sæti af 97 keppendum á heimsbikarmótinu í Peking í Kína í nótt. Hann náði 576 stigum (95-97-98-95-96-95) og 15 x-tíur.
Um næstu helgi fara fram tvö Íslandsmót. Á laugardaginn er keppt í Sportskammbyssu í Egilshöllinni í Grafarvogi og á sunnudaginn í Grófri skammbyssu í Digranesi í Kópavogi. Nánar um mótin á heimasíðum félaganna, Skotfélags Reykjavíkur og Skotíþróttafélags Kópavogs
Heimsbikarmótinu í Al Ain í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum er nú lokið. Okkar keppendur voru ekki að ná sínu besta í hitanum en stóðu sig samt með ágætum. Sigurður Unnar Hauksson var með 111 stig (24-23-19-22-23) í 109.sæti, Stefán Gísli Örlygsson með 110 stig (22-23-24-22-19) í 99.sæti og Hákon Þór Svavarsson með 109 stig (21-24-18-23-23) í [...]
Ársþing Skotíþróttasambandsins var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag. Fulltrúar tíu aðildarfélaga STí sóttu þingið. Stjórn sambandsins helst óbreytt en engin mótframboð komu gegn sitjandi stjórn en kosið var um formann og þrjá stjórnarmenn. Formaður er áfram Halldór Axelsson. Aðrir í stjórn eru Jórunn Harðardóttir, Kjartan Friðriksson, Guðmundur Kr. Gíslason, Ómar Ö.Jónsson, Helga Jóhannsdóttir [...]
Dagurinn „Play True Day“ er haldinn 10. apríl ár hvert og er dagur tileinkaður hreinum íþróttum. Honum er ætlað að auka vitundarvakningu meðal íþróttafólks, íþróttasambanda, yfirvalda og annarra sem tengjast íþróttum um baráttuna gegn lyfjamisnotkun. Frumkvæðið og hugmyndina að þessum degi eiga 17 lönd í S-Ameríku eftir að hafa sótt fræðsluráðstefnu WADA (World Anti-Doping Agency) [...]
Íslandsmótið í Loftriffli fór fram í Egilshöllinni í dag. Íslandsmeistari í karlaflokki varð Guðmundur Helgi Christensen úr Skotfélagi Reykjavíkur með 590,6, annar varð Róbert V. Ryan úr Skotfélagi Reykjavíkur með 560,9 stig og í þriðja sæti Þórir S. Kristinsson úr Skotfélagi Reykjavíkur með 550,7 stig. Í kvennaflokki varð Íris Eva Einarsdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur Íslandsmeistari [...]
Íslandsmótið í loftskammbyssu fór fram í Egilshöllinni í dag. Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur varð Íslandsmeistari í karlaflokki með 580 stig, annar varð Ívar Ragnarsson, Skotíþróttafélagi Kópavogs, með 565 stig og í þriðja sæti Ingvar Bremnes úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar með 529 stig. Í liðakeppni sigraði A-sveit Skotfélags Reykjavíkur með 1,591 stig, önnur varð sveit Skotíþróttafélags [...]
Okkar keppendur í haglabyssugreininni Skeet hafa nú lokið keppni á hemsbikarmótinu í Acapulco í Mexíkó. Hákon Þór Svavarsson varð í 56.sæti af 95 keppendum með 115 stig (21 22 24 23 25), Sigurður Unnar Hauksson hafnaði í 80.sæti með 111 stig (23 23 22 20 23) og Stefán Gísli Örlygsson í 94.sæti með 105 stig [...]
Heimsbikarmótið í Acapulco í Mexíkó stendur nú yfir. Okkar keppendur í Skeet hófu keppni í dag og skutu fyrstu tvo hringina. Sigurður Unnar Hauksson með 23 + 23, Hákon Þór Svarsson með 21 + 22 og Stefán Gísli Örlygsson með 21 + 19. Keppnin heldur áfram á morgun.
Ívar Rgnarsson úr SFK sigraði á Íslandsmótinu í Staðlaðri skammbyssu í dag, annar varð Jón Þór Sigurðsson úr SFK og þriðji Grétar Mar Axelsson úr SFK. Í liðakeppninni urðu lið SFK í efstu 3 sætunum. Nánar á úrslitasíðunni.
Jórunn Harðardóttir var að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu í Króatíu með 543 stig (91 88 90 90 91 93) og hafnaði í 59.sæti af 63 keppendum. Hún keppir svo í parakeppninni með Ásgeiri Sigurgeirssyni á morgun.
Ásgeir Sigurgeirsson keppti í morgun á Evrópumeistaramótinu í Króatíu í loftskammbyssu. Hann átti ekki góðan dag og endaði í 52.sæti af 78 keppendum með 568 stig (92 99 94 91 97 95). Þess má geta að hann hefur þrívegis komist í úrslit á EM. Jórunn Harðardóttir keppir í kvennaflokki síðar í dag og hefst sú [...]
Af óviðráðanlegum orsökum er Vesturlandsmótið í loftbyssu sem halda átti í Borgarnesi flutt yfir á sunnudaginn 14.apríl 2019
Nú er Evrópumeistaramótið í loftbyssugreinum að hefjast í Osijek í Króatíu. Ásgeir Sigurgeirsson og Jórunn Harðardóttir keppa þar í loftskammbyssu. Eins hefst Heimsbikarmótið í haglabyssugreinum í Acapulco í Mexícó í vikunni. Keppendur okkar þar eru Hákon Þ. Svavarsson, Stefán G. Örlygsson og Sigurður U. Hauksson og keppa þeir í skeet
Sunnudaginn 10.mars var haldið Landsmót í Þrístöðu riffli á Ísafirði. Guðmundur Helgi Christensen úr Skotfélagi Reykjavíkur sigraði með 1,098 stig, annar varð Valur Richter úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar með 977 stig og í þriðja sæti Leifur Bremnes úr sama félagi með 953 stig.
Þing Skotíþróttasambands Íslands verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 13.apríl.
Lansmót sti var haldið i dag á Ísafirði Í fyrsta sæti varð Guðmundur Helgi úr Skotfélagi Reykjavikur með 615.2 stig, í öðru sæti varð Valur Richter úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðarbæjar með 614.2 stig og í þriðja sæti hafnaði Jón Þór Sigurðsson úr Skotfélagi Kópavogs með 612.8 stig Lið Skotíþróttafélags Ísafjarðar sigraði í liðakeppninni. Nánar á úrslitasíðunni.
Íslandsmótið í Nordísku Trappi verður haldið á velli Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar samhliða SÍH-Open 6.-7.júlí 2019
Sigurður Unnar Hauksson var að ljúka keppni í skeet á hinu árlega Grand Prix móti á Kýpur. Þetta er með sterkustu mótum í geininni ár hvert. Sigurður náði alls 117 stigum og hafnaði í 22.sæti af 106 keppendum sem er frábær árangur. Fyrri daginn skaut hann 68 stig (23 23 22) og svo í dag [...]
Landsmót STÍ í loftskammbyssu fór fram í Íþróttahúsinu Digranesi laugardaginn 16. febrúar. Í stúlknaflokki setti Sigríður Láretta Þorgilsdóttir Skotfélagi Akureyrar, glæsilegt nýtt Íslandsmet, 501 stig en Sigríður sigraði keppinaut sinn, Sóleyju Þórðardóttur sem einnig kom frá Akureyri. Skor Sóleyjar var 481 stig.Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir, Skotfélagi Reykjavíkur, á 543 stigum. Þorbjörg Ólafsdóttir, Skotfélagi Akureyrar [...]