Mót og úrslit

Landsmót í 50m liggjandi riffli í Kópavogi í dag

Á Landsmóti STÍ í 50m liggjandi riffli, sem haldið var í Kópavogi í dag, bætti Óðinn Magnússon úr SKS eigið Íslandsmet í unglingaflokki og skaut nú 568,5 stig. Í karlaflokki sigraði Jón Þór Sigurðsson úr SFK með 622,7 stig, Guðmundur Helgi Christensen úr SR varð annar með 610,0 stig og þriðji Valur Richter úr SÍ [...]

By |2023-01-21T16:09:28+00:00January 21st, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í 50m liggjandi riffli í Kópavogi í dag

Landsmót í loftbyssugreinum í Egilshöll í dag

Landsmót STÍ í loftbyssugreinunum fór fram í Egilshöll í dag. Í loftskammbyssu sigraði Ívar Ragnarsson úr SFK með 558 stig, Bjarki Sigfússon varð annar með 533 stig og þriðji Björgvin Sigursson úr SK með 511 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 536 stig og Aðaleheiður L. Guðmundsdóttir úr SSS varð önnur með [...]

By |2023-01-07T16:07:02+00:00January 7th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í loftbyssugreinum í Egilshöll í dag

Íslandsmet á Landsmótinu í Egilshöll í dag

Landsmót STÍ í 50 metra liggjandi riffli fór fram í Egilshöllinni í dag. Í karlaflokki sigraði Jón Þór Sigurðsson úr SFK með 626,0 stig, Guðmundur Valdimarsson úr SÍ varð annar með 608,9 stig og þriðji Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 606,2 stig. Í stúlknaflokki hlaut Karen Rós Valsdóttir úr SÍ gullið með 522,4 stig. [...]

By |2022-12-03T17:43:38+00:00December 3rd, 2022|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmet á Landsmótinu í Egilshöll í dag

Mótaskrá haglabyssugreina 2023 komin

Mótaskrá STÍ yfir haglabyssugreinarnar er komin út. Hana má finna hérna.

By |2022-11-27T16:28:30+00:00November 27th, 2022|Mót og úrslit|Comments Off on Mótaskrá haglabyssugreina 2023 komin

Landsmót í loftbyssugreinum í Reykjanesbæ

Fyrsta Landsmót vetrarins í loftbyssugreinunum var haldið í Reykjanesbæ í dag. Í karlaflokki sigraði Bjarki Sigfússon úr SFK með 540 stig, Jórunn Harðardóttir úr SR sigraði í kvennaflokki með 547 stig, og Birgitta F.Bjarnadóttir í unglingaflokki í loftriffli. Nánar á úrslitasíðu STÍ hérna.

By |2022-11-13T09:00:52+00:00November 12th, 2022|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í loftbyssugreinum í Reykjanesbæ

Landsmót í riffilskotfimi um helgina

Um helgina fóru fram tvö fyrstu landsmót vetrarins. Þau fóru fram í Egilshöllinni en á laugardaginn var keppt í 50 metra Liggjandi riffli og sigraði Guðmundur H. Christensen úr SR í karlaflokki með 609,3 stig, Valur Richter úr SÍ varð annar með 606,5 stig og riðji Jón Á. Þórisson úr SR með 602,1 stig. Gullið [...]

By |2022-10-30T12:29:19+00:00October 30th, 2022|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í riffilskotfimi um helgina

Íslandsmót í Norrænu Trappi á Blönduósi

Lognið var heldur betur að flýta sér á þessu síðasta móti tímabilsins, var nokkuð stöðugt í 12 m/sek og hviðurnar fóru upp í ca. 20 m/sek. 10 hressir keppendur mættu til leiks og gerðu gott úr deginum, 11 voru skráir en einn forfallaðist vegna veikinda, 2 keppendur voru að skjóta sitt fyrsta STÍ mót. Keppendur [...]

By |2022-10-02T09:08:41+00:00October 2nd, 2022|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmót í Norrænu Trappi á Blönduósi

Íslandsmótið í Norrænu Trappi á Blönduósi 24.-25.sept.2022

Íslandsmótið í haglabyssugreininni Norrænu Trappi verður haldið á Blönduósi dagana 24.-25.september 2022. Mótinu var frestað í ágúst en hefur nú verið sett á dagskrá. Þátttökufrestur er einsog á öllum STÍ mótum, 5 virkir dagar fyrir mót og skal senda þær á kronos@simnet.is og sti@sti.is

By |2022-09-03T10:17:05+00:00September 3rd, 2022|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótið í Norrænu Trappi á Blönduósi 24.-25.sept.2022

Íslandsmótinu í Norrænu Trappi frestað

Íslandsmótinu í Norrænu Trappi, sem halda átti um næstu helgi á Blönduósi, hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

By |2022-08-21T20:59:16+00:00August 21st, 2022|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótinu í Norrænu Trappi frestað

Stefán Gísli sigraði á Landsmótinu um helgina

Síðasta Landsmót STÍ sumarsins fór fram á velli Skotfélags Akraness um helgina. Heimamaðurinn Stefán Gísli Örlygsson sigraði, Jakob Þór Leifsson úr SÍH varð annar og í þriðja sæti varð Daníel L. Heiðarsson úr SA. Einn mætti í unglingaflokk að þessu sinni, Bríet Berndsen úr SKS. Nánar á úrslitasíðunni.

By |2022-08-21T17:02:38+00:00August 21st, 2022|Mót og úrslit|Comments Off on Stefán Gísli sigraði á Landsmótinu um helgina
Go to Top