Á Landsmóti STÍ, sem haldið var á skotsvæði Skotíþróttafélags Suðurlands við Þorlákshöfn, í haglabyssugreininni Skeet setti Hákon Þór Svavarsson nýtt Íslandsmet með 122 stig af 125 mögulegum. Á mótinu sigraði hins vegar Arnór Logi Uzureau úr SÍH með 114 stig en 49 í úrslitum, í öðru sæti varð Daníel Heiðarsson úr SÍH með 106/44 stig og í því þriðja varð svo Hákon með 122/37 stig. Í fjórða sæti varð Guðlaugur Bragi Magnússon úr SA með 102/30 stig, Jón Gunnar Kristjánsson úr SÍH varð fimmti með 102/19 stig og í sjötta sæti hafnaði Jakob Þór Leifsson úr SFS með 116/12 stig.