Mót og úrslit

Uppfærður skorlisti í Skeet kominn á netið

Uppfærður skorlisti í skeet er kominn á netið eftir mót helgarinnar hérna.

By |2023-07-31T11:31:24+00:00July 31st, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Uppfærður skorlisti í Skeet kominn á netið

Íslandsmet hjá Hákoni í dag

Á Landsmóti STÍ, sem haldið var á skotsvæði Skotíþróttafélags Suðurlands við Þorlákshöfn, í haglabyssugreininni Skeet setti Hákon Þór Svavarsson nýtt Íslandsmet með 122 stig af 125 mögulegum. Á mótinu sigraði hins vegar Arnór Logi Uzureau úr SÍH með 114 stig en 49 í úrslitum, í öðru sæti varð Daníel Heiðarsson úr SÍH með 106/44 stig [...]

By |2023-07-30T19:37:46+00:00July 30th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmet hjá Hákoni í dag

Íslandsmót í Compak Sporting á Akureyri um helgina

Íslandsmeistaramót í Compak sporting 2023 lokið eftir frábæra helgi með keppendum og gestum. Íslandsmeistari karla varð Jóhann Ævarsson frá Skotfélagi Akureyri á skorinu 191. Íslandsmeisrari kvenna varð Snjólaug María Jónsdóttir frá Skotfélaginu Markviss á skorinu 164. Íslandsmeistari unglinga varð Felix Jónsson frá Skotfélagi Reykjavíkur á skorinu 181. Íslandsmeistarar í liðakeppni varð A sveit Skotfélags Akureyrar [...]

By |2023-07-30T19:25:47+00:00July 30th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmót í Compak Sporting á Akureyri um helgina

Íslandsmótinu í 300m riffli frestað

Af óviðráðanlegum orsökum er Íslandsmótinu í 300 m liggjandi riffli, sem halda átti hjá Skotdeild Keflavíkur um Verslunarmannahelgina, frestað um óákveðinn tíma.  Reynt verður að setja mótið á í september og verður það auglýst tímanlega.

By |2023-07-27T13:09:35+00:00July 27th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótinu í 300m riffli frestað

Íslandsmótið í Bench Rest VFS verður haldið á Húsavík

Íslandsmótið í Bench Rest VFS, skormótið, verður haldið á Húsavík dagana 2.-3.september, þar sem útséð er með að skotsvæði Skotfélags Reykjavíkur verði opnað tímanlega. Skotfélag Húsavíkur og Skotfélag Akureyrar hafa tekið að sér að halda mótið.

By |2023-07-26T11:36:15+00:00July 26th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótið í Bench Rest VFS verður haldið á Húsavík

Íslandsmót í Norrænu Trappi á Blönduósi

11 keppendur frá 3 íþróttafélögum voru skráðir til leiks. Aðstæður voru með besta móti, hlýtt og vindurinn lítið að flýta sér. Tveir keppendur voru að keppa á sínu fyrsta móti, frá SÍH og SFS. Úrslit urðu á þá leið að í kvennaflokk varð Snjólaug M Jónsdóttir MAV Íslandsmeistari kvenna á skorinu 111 sem að er [...]

By |2023-07-25T11:18:24+00:00July 25th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmót í Norrænu Trappi á Blönduósi

Breytt dagsetning á Landsmóti í Skeet

Landsmót STÍ sem halda átti á velli Skotfélags Akraness 19.-20.ágúst hefur verið fært um viku og verður það haldið dagana 12.-13.ágúst

By |2023-07-20T15:00:32+00:00July 20th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Breytt dagsetning á Landsmóti í Skeet

Uppfærður skorlisti í Skeet

Uppfærður skorlisti í Skeet er kominn hérna.

By |2023-07-15T10:45:34+00:00July 15th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Uppfærður skorlisti í Skeet

Íslandsmótið í Skeet verður í Þorlákshöfn

Vegna árekstra við bæði HM og EM hefur Íslandsmótið í Skeet verið flutt á velli Skotíþróttafélags Suðurlands dagana 25.-27.ágúst 2023. Dagskrá HM breyttist nýlega og kom þá í ljós að keppni í Skeet rakst á fyrirhugað Íslandsmót. Mótið átti að fara fram hjá Skotfélagi Akureyrar um miðjan ágúst en félagið treysti sér ekki til að [...]

By |2023-07-15T10:12:42+00:00July 15th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótið í Skeet verður í Þorlákshöfn

Íslandsmót í Bench Rest á Egilsstöðum

Íslandsmótið í Bench Rest grúppum fór fram á Egilsstöðum um helgina. Íslandsmeistari varð Wimol Sudee úr Skotfélagi Akureyrar, í öðru sæti varð Erla Sigurgeirsdóttir einnig úr Skotfélagi Akureyrar og í þriðja sæti hafnaði Jón B. Kristjánsson úr Skotfélaginu Markviss á Blönduósi. Nánari úrlsit má finna á úrslitasíðu STÍ. Myndband sem Hjalti Stefánsson mótsstjóri gerði um [...]

By |2023-07-10T09:43:33+00:00July 2nd, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmót í Bench Rest á Egilsstöðum

Jón Þór að keppa í Sviss í riffli

Euro Cup í 300 metra riffilskotfimi fer fram í Sviss 22.-23.júní. Jón Þór Sigurðsson keppir þar við bestu skotmenn Evrópu. Hægt að fylgjast með skorinu hérna.

By |2023-06-21T17:16:26+00:00June 21st, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Jón Þór að keppa í Sviss í riffli

Jóhann sigraði á Compak Sporting mótinu um helgina

Jóhann Ævarsson úr SA sigraði á Landsmóti STÍ í haglabyssugreininni Compak Sporting um helgina með 186 stig. Jón Valgeirsson úr SR varð annar með 184 stig og í þriðja sæti hafnaði Wimol Sudee úr SA með 175 stig. Keppt var í þrjá daga með nýju fyrirkomulagi þannig að á föstudeginum voru skotnir 2 hringir á [...]

By |2023-06-19T10:51:33+00:00June 19th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Jóhann sigraði á Compak Sporting mótinu um helgina

Íslandsmót í BR50 riffilskotfimi á Akureyri

14 keppendur mættu til leiks og flestir skutu fleiri en einn flokk. Þurrt og hlýtt, en vindurinn í aðalhlutverki og var svo hvasst í hviðum á sunnudeginum að vindflögg fuku út um holt og hæðir. Árangurinn eftir því. Þó virtust unglingarnir ráða betur við vindinn. Nánari úrslit á úrslitasíðu STÍ.

By |2023-06-21T17:11:45+00:00June 13th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmót í BR50 riffilskotfimi á Akureyri

Hákon sigraði á Landsmótinu í Skeet í dag

Hákon Þ. Svavarsson úr SFS sigraði á Landsmóti STÍ í skeet sem haldið var við Þorlákshöfn í dag. Hann skoraði 52 stig í úrslitunum og 117 stig í undankeppninni. Annar varð Pétur T. Gunnarsson úr SR með 51 stig í úrslitunum og 108 stig í undankeppninni. Í þriðja sæti hafnaði Arnór L. Uzureau úr SÍH [...]

By |2023-06-11T18:32:28+00:00June 11th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Hákon sigraði á Landsmótinu í Skeet í dag

Landsmót í Norrænu Trappi um helgina

Veður var þokkalegt en vindurinn fór mest í ca. 15m í kviðum. Það var svona með svalara móti alla helgina en þó heldur mildara á sunnudeginum. 11 keppendur voru skráðir til leiks frá 4 félögum en einn forfallaðist á föstudagskvöldinu og var því ákveðið að skipta í 2 riðla í staðinn fyrir 3. Skotnir voru [...]

By |2023-06-05T08:22:26+00:00June 5th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í Norrænu Trappi um helgina

Smáþjóðaleikunum á Möltu er lokið

Keppni á Smáþjóðaleikunum á Möltu er nú lokið. Í loftriffli karla komst Guðmundur Helgi Christensen í úrslit og endaði þar í 8.sæti. Þórir Kristinsson rétt missti af sæti í úrslitum og endaði í 9.sæti. Í loftriffli kvenna náði Jórunn Harðardóttir í úrslit og endaði þar í 7.sæti. Íris Eva Einarsdóttir náði ekki í úrslit og [...]

By |2023-06-04T12:17:54+00:00June 4th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Smáþjóðaleikunum á Möltu er lokið

Hákon sigraði á Landsmótinu á Akranesi

Landsmót STÍ í haglabyssugreininni Skeet fór fram um helgina á skotvelli Skotfélags Akraness. Hákon Þór Svavarsson úr SFS sigraði með 118/54 stig, í öðru sæti varð Guðlaugur Bragi Magnússon úr SA með 113/52 stig og í þriðja sæti varðp Stefán Gísli Örlygsson úr SKA með 110/45 stig.  Nánar á úrslitasíðu STÍ hérna

By |2023-05-31T16:24:39+00:00May 30th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Hákon sigraði á Landsmótinu á Akranesi

Landsmót í Compak Sporting í dag

Landsmót í haglabyssugreininni Compak Sporting fór fram á velli Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar að Iðavöllum í dag. Jón Valgeirsson úr SR sigraði með 138 stig, Ævar S.Sveinsson úr SÍH varð annar með 135 stig og í þriðja sæti hafnaði Aron K. Jónsson úr SÍH með 134 stig.

By |2023-05-28T11:14:42+00:00May 27th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í Compak Sporting í dag

Jón Þór að keppa í Evrópubikarnum í dag

Riffilskyttan Jón Þór Sigurðsson er að keppa í Evrópubikarkeppninni með riffli á 300 metra færi í Eskilstuna í Svíþjóð í dag. Keppni í fyrri riðli hefst kl. 12:40 og í seinni riðli, sem Jón er í, kl.14:25 að íslenskum tíma. Úrslitakeppnin er svo í fyrramálið. Hægt er að fylgjast með skorinu hérna. Skorið hjá honum [...]

By |2023-05-25T10:48:47+00:00May 24th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Jón Þór að keppa í Evrópubikarnum í dag

Íslandsmót í Frjálsri skammbyssu í dag

Íslandsmót í skammbyssugreininni Frjáls skammbyssa fór fram í Egilshöllinni í dag. Íslandsmeistari varð Ívar Ragnarsson úr SFK með 527 stig, Jórunn Harrðardóttir úr SR varð önnur með 488 stig og bronsið vann Magni Þ. Mortensen úr SR með 418 stig. Íslandsmeistari liða er sveit Skotfélags Reykjavíkur. Nánar á úrslitasíðu STÍ.

By |2023-05-19T23:10:48+00:00May 7th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmót í Frjálsri skammbyssu í dag
Go to Top