Landsmót STÍ í loftbyssugreinunum fór fram í Reykjanesbæ í dag. Í loftskammbyssu sigraði Bjarki Sigfússon úr SFK með 547 stig, í öðru sæti varð Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir úr SSS með 523 stig og í 3ja sæti Björgvin Sigurðsson úr SK með 515 stig. í flokki unglinga sigraði Adam Ingi Höybye Frankson úr SFK með 515 stig. Í loftriffli sigraði Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 565,6 stig, annar varð Leufur Bremnes úr SÍ með 518,1 stig og í þriðja sæti Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir úr SSS með 435,4 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ.