Erlend mót og úrslit

Heimsbikarmót ISSF í Lonato á Ítalíu

Heimsbikarmót ISSF í Lonato á Ítalíu stendur nú yfir. Við eigum þar tvo keppendur í SKEET, Hákon Þ. Svavarsson og Stefán G. Örlygsson. Þeir hefja keppni þriðjudaginn 26.apríl en þá eru skotnir 3 hringir og svo seinni tveir hringirnir á miðvikudaginn. Hægt ert að fylgjast með skorinu hérna.

By |2022-04-24T09:54:18+00:00April 24th, 2022|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Heimsbikarmót ISSF í Lonato á Ítalíu

Heimsbikarmót á Kýpur þessa dagana

Við eigum þrjá keppendur á heimsbikarmóti í skeet, sem stendur nú yfir á Kýpur. Þeir eru Hákon Þ. Svavarsson, Pétur T. Gunnarsson og Stefán G. Örlygsson. Þeir taka jafnframt þátt í liðakeppninni, Hægt er að fylgjast með skorinu hérna.

By |2022-03-13T15:16:30+00:00March 13th, 2022|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Heimsbikarmót á Kýpur þessa dagana

Intershoot aflýst í Hollandi

Alþjóðlega loftbyssumótinu, INTERSHOOT,  sem haldið er árlega í Hollandi, hefur verið aflýst. Það átti að vera dagana 3.-5.febrúar 2022 en vegna COVID-stöðunnar hefur stjórn mótsins ákveðið að fella það niður að þessu sinni. Nánar á heimasíðu keppninnar hérna.

By |2021-12-21T08:39:42+00:00December 21st, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Intershoot aflýst í Hollandi

Jón Þór keppti í úrslitum Lapua Cup í Sviss

Jón Þór Sigurðsson keppti í úrslitum Lapua Cup í borginni Winterthur í Sviss. Hann lenti í vandræðum með skotin en náði samt að komast skammlaust frá mótinu. Jón keppti í riffilgreininni 300 metrum liggjandi og var skorið 570/15x stig. Þess má geta að Íslandsmetið hans sem hann setti á Evrópumeistaramótinu í Króatíu í júní er [...]

By |2021-10-07T20:25:24+00:00October 3rd, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Jón Þór keppti í úrslitum Lapua Cup í Sviss

Felix hafnaði í 17.sæti á Evrópumeistaramótinu

Evrópumeistaramótið í haglabyssugreininni Compak Sporting fór fram í Frakklandi um helgina. Felix Jónsson keppti í unglingaflokki og hafnaði hann í 17.sæti en keppendur voru alls 30. Í karlaflokki lenti Jón Valgeirsson í 148.sæti af 325 keppendum og Jóhann Halldórsson í 307.sæti. Nánari úrslit eru hérna.

By |2021-08-25T14:51:25+00:00August 25th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Felix hafnaði í 17.sæti á Evrópumeistaramótinu

Jón Þór með 587/23x stig í Danmörku

Jón Þór Sigurðsson hafnaði í 26.sæti á Lapua European Cup í Árósum um helgina. Keppt er í liggjandi stöðu með riffli og skotið á 300 metra færi með opnum sigtum. Skorið hjá honum var 587/23x en Íslansmet hans er 595/25x.

By |2021-08-25T11:11:00+00:00August 25th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Jón Þór með 587/23x stig í Danmörku

Lapua European Cup í 300m riffli um helgina

Lapua European Cup í 300 metra riffilskotfimi fer fram í Árósum um helgina. Við eigum þar einn keppanda, Jón Þór Sigurðsson sem keppir í 300 metra liggjandi á sunnudaginn. Tenging við keppnina er á þessari slóð

By |2021-08-19T10:11:53+00:00August 19th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Lapua European Cup í 300m riffli um helgina

EM í Compak Sporting að hefjast

Evrópumeistaramótið í haglabyssugreininni Compak Sporting hefst á morgun. Þrír Íslendingar eru meðal keppenda, Jón Valgeirsson og Jóhann Halldórsson sem keppa í karlaflokki og Felix Jónsson í unglingaflokki. Hægt verður að fylgjast með framvindu hérna.

By |2021-08-18T21:08:02+00:00August 18th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on EM í Compak Sporting að hefjast

Fjórði keppnisdagur á EM

Í dag er liðakeppnin í Skeet á dagskrá. Hákon, Pétur og Stefán taka þátt og eru í harðri keppni við Eistnesku og Lettensku liðin. Hægt er að fylgjast með hérna.  Þeir enduðu að lokum í 14.sæti af 17 liðum, með 474 stig og komust einnig uppfyrir Búlgarska liðið. Evrópumeistarar urðu hins vegar Kýpverjar á nýju [...]

By |2021-05-30T10:29:55+00:00May 29th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Fjórði keppnisdagur á EM

Annar keppnisdagurinn á EM

Þá er annar keppnisdagurinn hafinn á EM í Króatíu. Hérna eru slóðir á okkar greinar : Skeet karla 26.-27.maí  Lokastaða: Pétur í 37.sæti(116), Hákon í 59.sæti(113), Stefán í 67.sæti(109) Skeet kvenna 26.-27.maí Lokastaða: Helga í 42.sæti(91) og Dagný í 44.sæti(85) 50m riffill Opinn flokkur, 27.maí  Lokastaða: Jón Þór í 94.sæti(615,4) Skeet parakeppni 28.maí Skeet liðakeppni karla 29.maí [...]

By |2021-05-27T14:50:55+00:00May 27th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Annar keppnisdagurinn á EM

Fyrsti keppnisdagur á Evrópumeistaramótinu

Íslensku keppendurnir hófu keppni í morgun á EM í Króatíu. Í haglabyssugreininni Skeet eru okkar keppendur Hákon Þ. Svavarsson, Pétur T. Gunnarsson, Stefán G. Örlygsson, Helga Jóhannsdóttir og Dagný H. Hinriksdóttir. Í riffilgreinunum 50m og 300m liggjandi keppir Jón Þ. Sigurðsson fyrir okkur og byrjar hann keppni á morgun. Einnig voru skráð í loftskammbyssu þau [...]

By |2021-05-26T15:29:13+00:00May 26th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Fyrsti keppnisdagur á Evrópumeistaramótinu

Heimsbikarmótið á Ítalíu hefst í dag

Heimsbikarmót ISSF í haglabyssugreinunum hefst í Lonato á Ítalíu í dag. Við eigum þar 4 keppendur í Skeet, Hákon Þ. Svavarsson, Stefán G. Örlygsson, Helgu Jóhannsdóttur og Dagnýju H. Hinriksdóttur. Þau hefja keppni á sunnudaginn 9.maí og er hægt að fylgjast með skorinu hérna í karlakeppninni og kvennakeppninni. Úrslitakeppnin (FINAL) er svo sýnd beint á [...]

By |2021-05-07T13:40:24+00:00May 7th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Heimsbikarmótið á Ítalíu hefst í dag

Mótakrá vorsins komin í gang

Ákveðið hefur verið að virkja mótaskrá vorsins í innigreinunum en breyta fyrirhuguðum Íslandsmótum í Landsmót. Keppnisfólkið hefur þá góðan tíma til að undirbúa sig en Íslandsmótin verða sett á dagskrá í haust. Nánari dagsetingar verða kynntar tímanlega fyrir þau.

By |2021-03-07T09:50:55+00:00March 7th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Mótakrá vorsins komin í gang

Alþjóðlega InterShoot mótinu aflýst 2021

Inter Shoot mótinu í loftbyssugreinunum sem haldið er árlega í Hollandi hefur verið aflýst 2021. Hérna er tilkynning mótshaldara: Good afternoon. I have to bring you sad news. The Covid-19 pandemic has caused widespread cancellations of sporting events. Knowing that it is not possible to comply with the Corona safety measures during the event at [...]

By |2020-09-08T18:12:20+00:00September 8th, 2020|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Alþjóðlega InterShoot mótinu aflýst 2021
Go to Top