Íslenski hópurinn í skotfimi í Andorra
Íslenski hópurinn í loftgreinum á Smáþjóðaleikunum í Andorra 2025. Gull og silfur í loftskammbyssu karla. Keppt var í loftriffli kvenna, loftskammbyssu kvenna og loftskammbyssu karla.
Íslenski hópurinn í loftgreinum á Smáþjóðaleikunum í Andorra 2025. Gull og silfur í loftskammbyssu karla. Keppt var í loftriffli kvenna, loftskammbyssu kvenna og loftskammbyssu karla.
Loftskammbyssa karla stendur nú yfir á Smáþjóðaleikunum í Andorra. Jón Þór Sigurðsson (567) og Ívar Ragnarsson (553) tryggðu sér sæti í úrslitum. Úrslitin hefjast kl.09:30 að íslenskum tíma og má fylgjast með þeim LIVE hérna. UPPFÆRT: Jón Þór sigraði í úrslitunum og Ívar varð annar eftir spennandi keppni.
Loftskammbyssukeppnin í Andorra er í gangi. Okkar keppendur eru komnir í úrslit, Jórunn Harðardóttir með 544 stig og Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir með 525 stig. Átta manna úrslitin hefjast kl. 09:00 að íslenskum tíma. Hægt er einnig að fylgjast með LIVE hérna. UPPFÆRT: Keppni er lokið og hafnaði Aðalheiður Lára í 5.sæti og Jórunn í því [...]
Keppni með loftriffli á 10 metra færi er að hefjast á Smáþjóðaleikunum í Andorra. Þar keppa fyrir Íslands hönd Jórunn Harðardóttir og Íris Eva Einarsdóttir. Fylgjast má með gangi mála hérna. UPPFÆRT: Íris er komin í 8 manna úrslit en Jórunn rétt missti af sæti í þeim. UPPFÆRT: Íris hafnaði í áttunda sæti í úrslitunum.
Landsmót í BR50 Sporter og HR flokkum var haldið hjá Skotfélaginu Markviss á Blönduósi dagana 24. og 25 maí. Alls voru 11 keppendur skráðir í HR og 6 í Sporter flokk, fyrir mót höfðu tveir keppendur í hvorum flokk boðað forföll með fyrirvara, þar sem aðrir keppendur og mótshaldari höfðu gert sínar ráðstafanir og mótið [...]
Smáþjóðaleikarnir í Andorra hefjast á morgun með setningarathöfn. Keppni hefst svo á þriðjudaginn en dagskrá má sjá hérna. Keppendur flugu til Barcelóna í morgun og fara svo í rútum upp til Andorra. Íslensku keppendurnir í skotfimi eru Ívar Ragnarsson, Jón Þór Sigurðsson, Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir og Jórunn Harðardóttir sem keppa í loftskammbyssu og í loftriffli [...]
Landsmót STÍ Skotíþróttasamband Íslands í 300m liggjandi riffli var haldið í dag hjá Skotdeild Keflavíkur á Hafnarheiðinni. Vindur var nokkuð hægur en breytilegur var hann, gekk svo yfir með duglegan skúr þegar mótið var við það að verða hálfnað sem breytti birtunni og þrátt fyrir að vindur hafi verið hægur er hægt að segja að [...]
Willum Þór Þórsson er nýr forseti ÍSÍ.145 voru á kjörskrá og voru fimm í framboði til forseta ÍSÍ; Valdimar Leó Friðriksson, Magnús Ragnarsson, Olga Bjarnadóttir, Willum Þór Þórsson og Brynjar Karl Sigurðsson.Willum Þór fékk afgerandi kosningu en af 145 atkvæðum fékk hann 109. Willum Þór er því réttkjörinn forseti ÍSÍ til næstu fjögurra ára og [...]
Íslandsmótið í Staðlaðri skammbyssu fór fram í Egilshöllinni í dag. Íslandsmeistarar urðu Jórunn Harðardóttir úr SR í kvennaflokki og Ívar Ragnarsson í karlaflokki. Nánar á www.sr.is
Riffilskyttan Jón Þór Sigurðsson var að landa sínum fyrsta sigri á Evrópubikarmótaröðinni í sinni grein sem er 300 metra skotfimi liggjandi. Keppt var í Sviss að þessu sinni. Hann jafnaði jafnframt Íslandsmet sitt, 596 stig (33x)(99-100-99-100-100-98). Fyrra metið setti hann á sama móti á sama stað fyrir tveimur árum. Í öðru sæti varð Pascal Bachmann [...]
Íslandsmeistaramótið í Loftriffli fór fram í Egilshöllinni í dag. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 594,3 stig, Íris E. Einarsdóttir úr SR varð önnur með 592,2 stig og í þriðja sæti Aðalheiður L. Guðmundsdóttir með 551,0 stig. Í karlaflokki sigraði Valur Richter úr SÍ með 566,5 stig, Leifur Bremnes úr SÍ hafnaði í [...]
Íslandsmeistaramótið í Loftskammbyssu fór fram í Egilshöllinni í dag. Í karlaflokki sigraði Ívar Ragnarsson úr SFK með 560 stig, Rúnar H. Sigmarsson úr SKS varð annar með 545 stig og í þriðja sæti hafnaði Bjarki Sigfússon úr SFK með 538 stig. Í kvennaflokki varð Jórunn Harðardóttir úr SR Íslandsmeistari með 548 stig, María Lagou varð [...]
Íslandsmótið í 50m þrístöðuriffli fór fram í Kópavogi í dag. Íslandsmeistarar urðu í drengjaflokki Úlfar Sigurbjarnarson úr SR, í karlaflokki Leifur Bremnes úr SÍ og í kvennaflokki Jórunn Harðardóttir úr SR en hún bætti Íslandsmet sitt og náði 549 stigum. Einnig bætti sveit SR Íslandsmetið með 1,555 stig. Nánar á úrslitasíðunni innan skamms.
Landsmót STÍ í skeet var haldið á svæði Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar um helgina. Jakob Þ. Leifsson úr SFS sigraði með 109/48 stig, annar varð Pétur T. Gunnarsson úr SR með 110/47 stig og bronsið vann Jón G. Kristjánsson úr SÍH með 96/39 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ
Jóhannes Frank Jóhannesson sigraði einnig í dag á opna alþjóðlega riffilmótinu í Frakklandi. Hann keppti þar í Bench Rest með léttum rifflum á 100+200 metra færi og vann þar heildarkeppnina með glæsibrag. Keppendur komu alls staðar að frá Evrópu en þátttaka var takmörkuð við 70 manns. Nánar hérna.
Heimsbikarmót ISSF í Skeet er að hefjast í dag í Nicosiu á Kýpur. Hákon Þór Svavarsson keppir þar og hefur leik á morgun. Þá eru skotnir tveir hringir, tveir á þriðjudaginn og svo einn á miðvikudag og úrslitin seinna þann dag. Hægt er að fylgjast með skorinu hérna.
Jóhannes Frank Jóhannesson sigraði á opnu alþjóðlegu riffilmóti í Frakklandi í dag. Hann keppti þar í Bench Rest með þungum rifflum á 100+200 metra færi og vann heildarkeppnina með glæsibrag. Keppendur komu alls staðar að frá Evrópu en þátttaka var takmörkuð við 70 manns.
Á Íslandsmeistaramótinu í keppni á 50 metra færi liggjandi (prone) urðu Íslandsmeistarar þessir, í drengjaflokki Úlfar Sigurbjarnarson úr SR en hann bætti jafnframt eigið Íslandsmet með skori uppá 596,4 stig, í stúlknaflokki Karen Rós Valsdóttir úr SÍ, í kvennaflokki Jórunn Harðardóttir úr SR og í karlaflokki Jón Þór Sigurðsson úr SFK. Í liðakeppninni varð sveit [...]
Fyrsta Landsmót sumarsins í haglabyssugreininni Skeet fer fram á svæði Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar um helgina.
Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands lýsir yfir stuðningi og samstöðu með starfsfólki samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Starf samskiptaráðgjafa var sett á laggirnar með lagasetningu eftir ákall um að einstaklingar innan íþrótta- og æskulýðsstarfs sem upplifa einelti, áreitni eða ofbeldi gætu fengið áheyrn, aðstoð og stuðning frá óháðum aðila og leitað réttar síns vegna atvika og [...]