Willum Þór Þórsson er nýr forseti ÍSÍ.
145 voru á kjörskrá og voru fimm í framboði til forseta ÍSÍ; Valdimar Leó Friðriksson, Magnús Ragnarsson, Olga Bjarnadóttir, Willum Þór Þórsson og Brynjar Karl Sigurðsson.
Willum Þór fékk afgerandi kosningu en af 145 atkvæðum fékk hann 109. Willum Þór er því réttkjörinn forseti ÍSÍ til næstu fjögurra ára og tekur við af Lárusi Blöndal að íþróttaþingi loknu.
STÍ óskar Willum Þór innilega til hamingju með kjörið og við hlökkum til samstarfsins!