Íslandsmót í Bench Rest á Akureyri
Íslandsmótið í Bench Rest skori hefur verið flutt til Akureyrar og verður haldið þar 6.-7. September. Mótið átti að halda í Reykjavík en vegna ákvæðis í starfsleyfi varð Skotfélag Reykjavíkur að skila inn mótinu.
Íslandsmótið í Bench Rest skori hefur verið flutt til Akureyrar og verður haldið þar 6.-7. September. Mótið átti að halda í Reykjavík en vegna ákvæðis í starfsleyfi varð Skotfélag Reykjavíkur að skila inn mótinu.
Íslandsmeistaramót Skotíþróttasambands Íslands í haglabyssugreininni “SKEET” fór fram á skotvelli Skotíþróttafélags Suðurlands í samvinnu við Skotfélag Reykjavíkur. Íslandsmeistari karla varð Arnór Logi Uzureau úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar með 116/54 stig, annar varð Hákon Þór Svavarsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands með 111/45 stig og í þriðja sæti hafnaði Guðlaugur Bragi Magnússon úr Skotfélagi Akureyrar með 108/38 stig. Í [...]
Jón Þór Sigurðsson var að sigra á Evrópumeistaramótinu í Frakklandi í riffilgreininni “300m Prone” þar sem skotið er með stórum rifflum, liggjandi af 300 metra færi með opnum gatasigtum. Hæst er hægt að fá 600 stig og 60 X-tíur. Jón Þór endaði með 599 stig og 45 X innri tíur. Annar varð Alexander Schmirl frá [...]
Aðalkeppninni í Skeet er lokið og var árangur okkar keppenda þokkalegur, efstur var Hákon með 115 af 125 og dugði það honum til að ná lágmarki fyrir Solo keppnina þar sem að í fyrstu útsláttarhrinu atti hann kappi við Jack Fairclough frá Írlandi og sigraði Hákon með yfirburðum. Í næstu hrinu keppti Hákon við Jerzy [...]
Íslandsmótið í Skeet verður haldið hjá Skotíþróttafélagi Suðurlands en ekki hjá Skotfélagi Reykjavíkur á Álfsnesi.
Íslandsmótið í BR50 var haldið á Akureyri um helgina. Þar er keppt með cal.22 rifflum í þremur riffilþyngdarflokkum. Íslandsmeistarar urðu Davíð Bragi Gígja úr SR í þyngsta flokknum, Magnús Sigmundsson úr SFK í létta flokknum og Pétur Már Ólafsson úr SSS í sporter flokknum. Í unglingaflokki voru tveir keppendur og varð Samúel Ingi Jónsson úr [...]
Evrópumeistaramótið (ESC) í öllum útigreinum hefst í dag í Chateauroux í Frakklandi. Við eigum þar þrjá keppendur í haglabyssugreininni SKEET, einn riffilgreinunum 50m og 300m liggjandi sem og í Staðlaðri skammbyssu. Skeet keppnin hefst 25.júlí og er hægt að fylgjast með skorinu hérna. Keppni í 50m liggjandi riffli er 28.júlí, í Staðlaðri skammbyssu 29.júlí og [...]
Mótaskýrsla Íslandsmót í Norrænu trapi 19.-20. Júlí 2025 11 keppendur frá 3 félögum voru skráðir til leiks en einn forfallaðist að morgni fyrri keppnisdags. Milt og gott veður var alla helgina þó lítið hafi sést til sólar sökum gosmengunar og örlítil rigning var á sunnudagsmorguninn en ekkert sem að hafði áhrif á keppendur. Hæsta skor [...]
Íslandsmeistaramót Skotíþróttasambands Íslands í haglabyssugreininni “Compak Sporting” fór fram á skotsvæði Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi um helgina. Í greininni er skotið á 100 leirdúfur hvorn daginn og er mest hægt að ná 200 stigum í keppninni. Í kvennaflokki sigraði Dagný Huld Hinriksdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 158 stig, í öðru sæti varð Snjólaug María Jónsdóttir [...]
Íslandsmeistaramótið í keppni með 22ja kalibera rifflum, (BR50 Hunter) fór fram á svæði Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi í dag. Skotið er á 50 metra færi á þrjár skífur sem hver er með 25 skorhringjum. Mest er hægt að ná 750 stigum og X-tíur geta flestar orðið 75. Íslandsmeistari í opnum flokki varð Davíð Bragi Gígja [...]
Nú hafa keppendur okkar lokið keppni á Heimsbikarmótinu á Ítalíu með frábærum árangri. Hákon Þór Svavarsson endaði í 39.sæti með 120 stig (23-24-24-24-25), Jakob Þór Leifsson í 48.sæti einnig með 120 stig (24-24-23-25-24) og Arnór Logi Uzureau í 129.sæti með 114 stig (23-22-23-24-22) og samanlagt bættu þeir Íslandsmetið í liðakeppni með 354 stig en gamla [...]
Heimsbikarmót ISSF í haglabyssu fer nú fram í Lonato á Ítalíu. Við eigum þar 3 keppendur í “Skeet”, Jakob Þ. Leifsson, Arnór L. Uzureau og Hákon Þ. Svavarsson. Alls eru keppendur 176 talsins allsstaðar að úr heiminum. Þeir hefja keppni á morgun, sunnudag en þá skjóta þeir tvo hringi, tvo á mánudaginn og svo síðasta [...]
Islandsmótinu i gruppuskotfimi 100 - 200 m sem haldið var á Húsavik, þessa helgi er lokið. Íslandsmeistari árið 2025 var Jóhannes Frank Jóhanneson frá Skotfélagi Keflavíkur. Skotfelag Husavikur óskar Jóhannesi til hamingju með titilinn. Þá vill skotfelagið þakka öllum keppendum fyrir drengilega keppni. Starfsmenn á mótinu stóðu sig óaðfinnnlega, og kann Skotfélag Húsavikur þeim miklar [...]
Fyrsta móti sumarsins lokið, aðstæðu voru frekar krefjandi á laugardeginum en þá var NA átt stöðug í um 15m/sek og kviður fóru upp undir 19 m/sek. Þetta er í fyrsta skipti sem að mót í Norrænu trapi er skotið sem unisex mót, keppendur voru skráðir 11 frá 3 félögum. 2 lið voru skráð til keppni. [...]
Íslandsmótið í 300m liggjandi var haldið hjá okkur í Skotdeild Keflavíkur í dag. Veður aðstæður voru mjög krefjandi og þrátt fyrir að spáin hafi verið há-norðan 4-6m á sek í allan dag þá gustaði hann bæði frá austri og vestri á milli.Á 100 og 300m voru 2.5m veifur sem stóðu oftar en ekki í sitthvora [...]
Þann 17.06.25 var haldið annað Landsmót ársins í .22 Hunter Class hjá Skotfélaginu Markviss. Alls mættu 7 keppendur til leiks þar af 2 í unglingaflokki en 2 keppendur boðuðu forföll innan setts tíma. Aðstæður voru með ágætum hægur vindur þó hann léki suma keppendur grátt og smá úði í blálokinn sem hafði engin áhrif. Mótshald [...]
Landsmót STÍ í haglabyssugreininni Compak Sporting var haldið á skotvöllum Skotfélags Akureyrar um helgina. Guðni Þorri Helgason úr SR sigraði með 182 stig, Jóhann Ævarsson úr SA varð annar með 174 stig og í þriðja sæti hafnaði Gunnar Þór Þórarnarson með 172 stig eftir bráðabana við Theódór Þórólfsson sem einnig keppti fyrir SA. Nánar á [...]
Landsmót STÍ í haglabyssugreininni Skeet var haldið á skotsvæði Skotíþróttafélags Suðurlands um helgina. Hákon Þ.Svavarsson úr SFS sigraði með 116+51 stig í úrslitum, Arnór L. Uzureau varð annar með 116+48 stig og í þriðja sæti varð Jón G. Kristjánsson úr SÍH með 105+39 stig. Nánar á úrslitasíðunni.
Íslenski hópurinn í loftgreinum á Smáþjóðaleikunum í Andorra 2025. Gull og silfur í loftskammbyssu karla. Keppt var í loftriffli kvenna, loftskammbyssu kvenna og loftskammbyssu karla.
Loftskammbyssa karla stendur nú yfir á Smáþjóðaleikunum í Andorra. Jón Þór Sigurðsson (567) og Ívar Ragnarsson (553) tryggðu sér sæti í úrslitum. Úrslitin hefjast kl.09:30 að íslenskum tíma og má fylgjast með þeim LIVE hérna. UPPFÆRT: Jón Þór sigraði í úrslitunum og Ívar varð annar eftir spennandi keppni.