Á Íslandsmeistaramótinu í keppni á 50 metra færi liggjandi (prone) urðu Íslandsmeistarar þessir, í drengjaflokki Úlfar Sigurbjarnarson úr SR en hann bætti jafnframt eigið Íslandsmet með skori uppá 596,4 stig, í stúlknaflokki Karen Rós Valsdóttir úr SÍ, í kvennaflokki Jórunn Harðardóttir úr SR og í karlaflokki Jón Þór Sigurðsson úr SFK. Í liðakeppninni varð sveit SÍ Íslandsmeistari. Nánar á úrslitasíðunni innan skamms.