Landsmót STÍ á Akureyri
Staðan eftir fyrri daginn á Landsmóti STÍ í skeet sem fram fer á Akureyri um helgina er hérna
Staðan eftir fyrri daginn á Landsmóti STÍ í skeet sem fram fer á Akureyri um helgina er hérna
Hérna kemur skorlisti STÍ í skeet einsog hann er í dag
SÍH Open fór fram daga 30.júní- 1.júlí 2018. Í Norrænu Trappi mættu þrír keppendur til leiks og sigraði Timo Salsola, Ólafur V. Ólafsson varð annar og Alvar Salsola hafnaði í þriðja sæti. Í Skeet var keppt í A og B flokki og sigraði Pétur T. Gunnarsson í A-flokki, Sámal Debes varð annar og Guðmann Jónasson [...]
Þrjár íslenskar konur kepptu á hinu árlega "Ladies Grand Prix"-móti í haglabyssugreininni Skeet um helgina. Helga Jóhannsdóttir varð í öðru sæti í A-flokki (LA) með 32 stig/96 í undanrásum (22-16-18-19-21), Dagný H. Hinriksdóttir fékk brons í B-flokki (LB) með 22 stig/81 í undanrásum (17-14-15-17-18) og Guðrún Hjaltalín varð sjötta í B-flokki (LB) með 3 stig/53 [...]
Í dag var gengið frá samningum Ólympíusamhjálparinnar við sérsambönd ÍSÍ og íþróttafólks þeirra vegna undirbúnings fyrir Ólympíuleikana í Tókýó 2020. Um er að ræða styrki vegna átta einstaklinga frá sex sérsamböndum ÍSÍ. Heildarverðmæti samninga gæti numið allt að 21 m.kr. (miðað við gengi dagsins í dag) en um er að ræða mánaðarlegan styrk fyrir hvern [...]
Landsmót STÍ fór fram á velli Skotíþróttafélags Suðurlands um helgina. Í skeet keppni karla sigraði Hákon Þ. Svavarsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands með 53 stig (113) annar varð Stefán Gísli Örlygsson úr Skotfélagi Akraness með 51 stig (116), og í þriðja sæti varð Jakob Þór Leifsson frá Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar með 41 stig (100). Í liðakeppni karla [...]
Guðmundur Helgi Christensen úr Skotfélagi Reykjavíkur keppti á 17.Mastersmótinu í riffli sem fram fór í Árósum í Danmörku um helgina. Hann setti nýtt Íslandsmet í final í Þrístöðuriffli 391,0 stig.
Landsmót STÍ í haglabyssugreininni Skeet fer fram á velli Skotíþróttafélags Suðurlands um helgina. Völlurinn er rétt fyrir utan Þorlákshöfn.
Heimsbikarmótinu á Möltu er nú lokið í skeet. Stefán G. Örlygsson varð í 64.sæti og Hákon Þ.Svavarsson í 65.sæti báðir með 107 stig og Sigurður U. Hauksson varð í 79.sæti með 105 stig. Alls voru keppendur 101.
Gunnar Gunnarsson varð Íslandsmeistari í karlaflokki í Compak Sporting í dag með 92 stig. Í öðru sæti varð Þórir Guðnason með 90 stig eftir bráðabana við Aron Kr. Jónsson sem var með sama stigafjölda. Þeir kepptu allir fyrir Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar. Í kvennaflokki varð Ingibjörg A. Bergþórsdóttir úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar Íslandsmeistari með 74 stig, önnur varð [...]
Fyrsta Íslandsmótið í nýrri keppnisgrein í haglabyssu, Compak Sporting, fer fram á velli Skotfélags Akureyrar um helgina. Mikill fjöldi keppenda er skráður til leiks og verða skotnar 50 dúfur í dag og 50 á morgun.
Heimsbikarmótið á Möltu hefst á morgun. Landslið okkar í haglabyssugreininni Skeet hélt utan í morgun. Þeir hefja keppni á föstudaginn og verður hægt að fylgjast með skori þeirra hérna. Þetta eru þeir Hákon Þ. Svavarsson, Stefán G. Örlygsson og Sigurður U. Hauksson.
Helga Jóhannsdóttir bætti Íslandsmetið í Skeet kvenna á Opna Skandinavíska mótinu í Danmörku í dag en hún náði 100 stigum (23 20 20 17 20)
Landsmót STÍ í skeet fór fram á velli Skotfélagsins Markviss á Blönduósi laugardaginn 2.júní. Sigurvegari í karlaflokki var Guðlaugur Bragi Magnússon úr SA með 106 stig, annar varð Guðmann Jónasson úr MAV með 92 stig og í þriðja sæti Ómar Örn Jónsson úr SA með 89 stig. Í kvennaflokki sigraði Snjólaug María Jónsdóttir úr MAV [...]
Ásgeir Sigurgeirsson (388/97 93 98 98) og Jórunn Harðardóttir (365/88 91 95 91) enduðu í 49.sæti af 66 á Heimsbikarmótinu í München í Þýskalandi, í parakeppninni í loftskammbyssu í morgun með 751 stig sem jafnframt er Íslandsmet í parakeppni.
Jórunn Harðardóttir var að ljúka keppni á nýju Íslandsmeti í loftskammbyssu á Heimsbikarmótinu í München í Þýskalandi. Hún hafnaði í 78.sæti af 122 keppendum, en hún náði 560 stigum (92 93 95 94 93 93). Fyrra met hennar var 557 stig sem hún setti á Reykjavíkurleikunum í byrjun árs. Hún keppir svo ásamt Ásgeiri Sigurgeirssyni [...]
40.Skotíþróttaþing var haldið í Íþróttamiðstöðoinni í Laugardal í dag. Mjög góða þátttaka var á þinginu en fulltrúar komu frá 10 aðildarfélögum STÍ. Þingforseti var Jón S. Ólason fyrrverandi formaður STÍ. Kjör fór að þessu sinni fram um einn varamann í stjórn en Kristvin Ómar Jónsson var skjálfkjörinn þar sem ekki bárust önnur framboð. Einnig var [...]
Ásgeir Sigurgeirsson lauk keppni í dag á Heimsbikarmótinu í München en hann keppti þar í loftskammbyssu. Hann hafnaði í 61.sæti af 135 keppendum. Skorið hjá honum var 572 stig (95 96 95 95 94 97) sem er töluvert frá hans besta en hann á Íslandsmetið í greininni sem er 589 stig. Nánar frá keppninni hérna.
Ásgeir Sigurgeirsson keppir á morgun föstudag í loftskammbyssu á Heimsbikarmótinu í München og hefst hans riðill kl. 06:45 að íslenskum tíma. Hægt er að fylgjast með honum á þessari slóð. Jórunn Harðardóttir keppir í loftskammbyssu á sunnudaginn og byrjar keppnin kl. 09:15 að íslenskum tíma og hægt að fylgjast með henni hérna. Þau taka svo [...]
Grand Prix mótinu í München er nú lokið og stóðu okkar keppendur sig alveg ágætlega. Jón Þór Sigurðsson endaði í 50.sæti af 63 keppendum með 617,3 stig (103.5 102.0 103.1 103.5 103.4 101.8) Bára Einarsdóttir hafnaði í 28.sæti af 36 keppendum með 613,7 stig (102.0 102.4 101.8 103.5 101.5 102.5) Keppt var með 22ja kalibera [...]