gummiisnes

About Guðmundur Kr. Gíslasson

This author has not yet filled in any details.
So far Guðmundur Kr. Gíslasson has created 718 blog entries.

Íslandsmet á Reykjavíkurmótinu í dag

Þrjú Íslandsmet féllu á Reykjavíkurmóti í skotfimi sem haldið var hjá Skotfélagi Reykjavíkur (SR) í Egilshöll í dag. Íris Eva Einarsdóttir (SR) setti nýtt Íslandsmet í loftriffli kvenna og skaut 605,4 stig og varð samtímis Reykjavíkurmeistari. Í öðru sæti varð Jórunn Harðardóttir (SR) með 595,3 stig og í þriðja sæti varð Bára Einarsdóttir úr Skotíþróttafélagi Kópavogs [...]

By |2021-04-15T15:22:26+00:00April 21st, 2018|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmet á Reykjavíkurmótinu í dag

Íslandsmótið í Sport skammbyssu í dag

Íslandsmótið í Sport skammbyssu fór fram í Egilshöllinni í dag. Íslandsmeistari varð Ívar Ragnarsson úr SFK með 551 stig og 6 innri tíur, í öðru sæti Friðrik Goethe úr SFK með 551 stig og 5 innri tíur. Í þriðja sæti varð Þórður Ívarsson úr SA með 536 stig. Íslandsmeistarar í liðakeppninni urðu A-lið Skotíþróttafélags Kópavogs [...]

By |2018-04-15T19:22:08+00:00April 15th, 2018|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótið í Sport skammbyssu í dag

Íslandsmótið í Grófri skammbyssu í dag

Íslandsmótið í Grófri skammbyssu fór fram í Kópavogi í dag. Íslandsmeistari varð Ívar Ragnarsson úr SFK með 548 stig, annar varð Ólafur Egilsson úr SFK með 521 stig og í þriðja sæti Eiríkur Ó. Jónsson úr SFK með 520 stig. Í liðakeppninni varð A-sveit Skotíþróttafélags Kópavogs (SFK) Íslandsmeistari með 1,555 stig, í öðru sæti sveit [...]

By |2018-04-14T20:27:05+00:00April 14th, 2018|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótið í Grófri skammbyssu í dag

Íslandsmetin urðu þrjú á Íslandsmótinu í dag

Íslandsmótið í loftriffli fór fram í Egilshöllinni í Grafarvogi í dag. Í unglingaflokki karla varð Magnús G. Jensson úr Skotdeild Keflavíkur Íslandsmeistari á nýju Íslandsmeti, 566,6 stig, annar varð Elmar T. Sverrisson með 526,3 stig og í þriðja sæti Jakub I. Pitak með 522,0 stig. Þeir koma allir úr Skotdeild Keflavíkur og bættu þeir í [...]

By |2018-04-09T14:14:12+00:00April 8th, 2018|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmetin urðu þrjú á Íslandsmótinu í dag

Eitt Íslandsmet féll í dag

Íslandsmótið í loftskammbyssu fór fram í Egilshöllinni í Grafarvogi í dag. Eitt Íslandsmet féll en Sigríður L. Þorgilsdóttir úr Skotfélagi Akureyrar bætti metið í unglingaflokki en hún skoraði 465 stig og varð Íslandsmeistari unglinga. Í öðru sæti varð Sóley Þórðardóttir úr SA með 410 stig og í þriðja sæti varð Ingibjörg Y. Gunnarsdóttir úr SR. [...]

By |2018-04-08T09:27:37+00:00April 7th, 2018|Mót og úrslit|Comments Off on Eitt Íslandsmet féll í dag

Íslandsmótin í loftbyssugreinunum um helgina

Íslandsmótin í loftskammbyssu og loftriffli fara fram í Egilshöllinni um næstu helgi. Á laugardaginn hefst loftskammbyssukeppnin kl. 09:00, næsti riðill kl.11 og svo hefst síðasti riðillinn kl. 13:00. Á sunnudaginn hefst loftrifflilkeppnin kl.10 og seinni riðillinn kl. 12:00.

By |2018-04-07T11:40:50+00:00April 3rd, 2018|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótin í loftbyssugreinunum um helgina

Úrslit í Þrístöðuriffli á Ísafirði

Opna Vestfjarðarmótið í þrístöðu var haldið í dag. Bára Einarsdóttir úr SFK varð í 1. sæti í kvennaflokki og setti nýtt Íslandsmet 1,034 stig , í öðru sæti varð Guðrún Hafberg úr SFK með 974 stig og í þiðja sæti Margrét Alfreðsdóttir úr SFK með 884 stig.  Þær skipuðu lið SFK og setu nýtt Íslandsmet 2,892 [...]

By |2018-03-26T20:23:45+00:00March 25th, 2018|Uncategorized|Comments Off on Úrslit í Þrístöðuriffli á Ísafirði

Úrslit í riffli í dag á Ísafirði

Opna Vestfirska mótið í 50 metra liggjandi riffli var haldið i dag á Ísafirði. Í kvennaflokki sigraði Bára Einarsdóttir úr SFK á nýju Íslandsmeti með 617,8 stig, í öðru sæti varð Margrét Alfreðsdóttir úr SFK með 598 stig og í þriðja sæti hafnaði Guðrún Hafberg úr SFK með 596,1 stig. Í karlaflokki sigraði Valur Richter úr SÍ [...]

By |2018-03-25T08:42:28+00:00March 24th, 2018|Uncategorized|Comments Off on Úrslit í riffli í dag á Ísafirði

Íslandsmót í Staðlaðri skammbyssu

Íslandsmótið í Staðlaðri skammbyssu var haldið í Egilshöllinni í Grafarvogi í dag. Íslandsmeistari varð Ívar Ragnarsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs með 541 stig, annar varð Jón Þ. Sigurðsson einnig úr Kópavogi með 526 stig og í þriðja sæti hafnaði Grétar M. Axelsson úr Skotfélagi Akureyrar með 516 stig. Í liðakeppninni sigraði A-sveit Skotíþróttafélags Kópavogs með 1,575 [...]

By |2018-03-14T19:43:34+00:00March 10th, 2018|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmót í Staðlaðri skammbyssu

Landsmót í loftbyssugreinunum í Kópavogi

Thomas Viderö, Skotíþróttafélagi Kópavogs, sigraði í Landsmóti STÍ í loftskammbyssu sem fram fór í Íþróttahúsinu Digranesi laugardaginn 24. febrúar. Skor Thomasar var 557 stig en Þórður Ívarsson, Skotfélagi Akureyrar varð í öðru sæti með 540 stig sem dugði honum til að komast upp í 1. flokk. Þriðja sætið kom svo í hlut Dúa Sigurðssonar úr [...]

By |2018-02-25T19:54:37+00:00February 25th, 2018|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í loftbyssugreinunum í Kópavogi

Ásgeir í 30.sæti

Ásgeir Sigurgeirsson hafnaði í 30.sæti af 80 keppendum á EM i Ungverjalandi. Skorið var 572 stig (96-93-94-97-95-97 og 15 x-tíur) sem er nokkuð frá hans besta en Íslandsmet hans er 589 stig sem hann sett á móti fyrir fimm árum.

By |2021-04-15T15:22:26+00:00February 24th, 2018|Uncategorized|Comments Off on Ásgeir í 30.sæti

Jórunn endaði með 554 stig á EM

Jórunn Harðardóttir var að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu í loftskammbyssu í Györ í Ungverjalandi. Hún hafnaði í 54.sæti af 72 keppendum. Skorið var 554 stig (89-91-94-93-90-97 og 15x-tíur). Íslandsmet hennar sem hún setti á RIG-leikunum í Reykjavík er 557 stig.

By |2021-04-15T15:22:26+00:00February 24th, 2018|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Jórunn endaði með 554 stig á EM

Evrópumeistaramótið í loftbyssugreinunum

Ísland á tvo keppendur á Evrópumeistaramótinu í loftbyssugreinunum sem fram fer þessa dagana í Györ í Ungverjalandi.  Jórunn Harðardóttir keppir í loftskammbyssu á laugardaginn  kl. 08:30 að íslenskum tíma. Tengill á skortöfluna er hérna.  Ásgeir Sigurgeirsson keppir einnig í loftskammbyssu á laugardaginn en hann byrjar keppni kl. 11:00 að íslenskum tíma. Skortafla karlakeppninnar er hérna. [...]

By |2018-02-22T14:33:46+00:00February 22nd, 2018|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Evrópumeistaramótið í loftbyssugreinunum

Ný stjórn Markviss á Blönduósi

Aðalfundur Skotfélagsins Markviss á Blönduósi var haldinn í dag sunnudaginn 18 febrúar. Nýja stjórn félagsins skipa eftirtaldir: Formaður Jón Brynjar Kristjánsson, gjaldkeri Guðmann Jónasson, ritari  Snjólaug M. Jónsdóttir og meðstjórnendur Þorsteinn Hafþórsson og Einar Stefánsson. Í varastjórn voru kjörnir Brynjar Þór Guðmundsson og Ásgeir Þröstur Gústasson.

By |2018-02-18T19:48:52+00:00February 18th, 2018|Uncategorized|Comments Off on Ný stjórn Markviss á Blönduósi

Evrópumeistaramótið í loftbyssugreinum í Györ í Ungverjalandi

Evrópumótið í loftskammbyssu og loftriffli er nú að hefjast í Györ í Ungverjalandi. Ísland á þar tvo keppendur, Ásgeir Sigurgeirsson í loftskammbyssu karla og Jórunni Harðardóttur í loftskammbyssu kvenna. Ennig keppa þau blandaðri liðakeppni þar sem kona og karl skipa lið. Þau enduðu í 10.sæti í liðakeppninni á síðasta EM og vantaði þá aðeins 1 [...]

By |2018-02-24T10:10:32+00:00February 18th, 2018|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Evrópumeistaramótið í loftbyssugreinum í Györ í Ungverjalandi

Landsmót á Akureyri um helgina

Landsmót í Sport skammbyssu og Gróf skammbyssu fóru fram á Akureyri um helgina. Þórður Ívarsson sigraði í Sport skammbyssu með 535 stig, Þorbjörg Ólafsdóttir varð önnur með 511 stig og Haukur F. Möller varð þriðji með 465 stig. Þórður sigraði einnig í Gróf skambyssu með 498 stig, Finnur Steingrímsson varð annar með 488 stig og [...]

By |2018-02-18T18:59:45+00:00February 18th, 2018|Uncategorized|Comments Off on Landsmót á Akureyri um helgina

Landsmót í Þrístöðuriffli í dag

Í dag sunnudaginn 11. febrúar, fór fram landsmót STÍ í þrístöðu í Digranesi og skjóta konur nú 3 X 40 skot, eins og karlarnir. Í karlaflokki sigraði Theodór Kjartansson Skotdeild Keflavíkur á 1027 stigum, annar varð Þorsteinn Bjarnason Skotfélagi Reykjavíkur á 945 stigum og þriðji varð Ingvar Bremnes Skotfélagi Ísafjarðar á 874 stigum Í kvennaflokki [...]

By |2018-02-11T18:30:37+00:00February 11th, 2018|Uncategorized|Comments Off on Landsmót í Þrístöðuriffli í dag
Go to Top