gummiisnes

About Guðmundur Kr. Gíslasson

This author has not yet filled in any details.
So far Guðmundur Kr. Gíslasson has created 754 blog entries.

Íslandsmet hjá Karenu Rós Valsdóttur í 50 m riffilkeppninni í dag

Íslandsmeistaramótið í 50 m riffli fór fram í aðstöðu Skotíþróttafélags Kópavogs í  Digranesi í dag. Karen Rós Valsdóttir úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar bætti þar Íslandsmetið í unglingaflokki stúlkna með skori uppá 580,2 stig og hlaut Íslandsmeistaratitil stúlkna. Íslandsmeistarar urðu Jón Þór Sigurðsson úr SFK í karlaflokki með 622,0 stig, annar varð Arnfinnur A. Jónsson úr SFK [...]

By |2023-04-15T20:28:36+00:00April 15th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmet hjá Karenu Rós Valsdóttur í 50 m riffilkeppninni í dag

Úrtökumót númer tvö í Þorlákshöfn á laugardaginn

Úrtökumót STÍ í Skeet númer tvö í röðinni fyrir Smáþjóðaleikana á Möltu fer fram á velli SFS við Þorlákshöfn á laugardaginn. Mótið hefst kl.10:00 og verða skotnir fjórir hringir. 9 skotmenn eru skráðir til leiks og er þeim skipt í tvo riðla sem sjá má hérna. Úrslitin eru komin  hérna

By |2023-04-15T13:23:41+00:00April 11th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Úrtökumót númer tvö í Þorlákshöfn á laugardaginn

SKOTÞING 2023 gögn komin á netið

Nú eru tvær vikur í Skotþingið þann 22.apríl n.k. Hægt er að nálgast þær tillögur sem höfðu borist 3 vikum fyrir þing á þessari síðu.  Eins eru framboð til stjórnar birt en sjálfkjörið er í stjórn samkvæmt framboðum sem komu inn og eru studdar af stjórnum viðkomandi félaga. Frekari gögnum verður bætt við eftir því [...]

By |2023-04-21T17:20:20+00:00April 8th, 2023|Uncategorized|Comments Off on SKOTÞING 2023 gögn komin á netið

Skráning á úrtökumótið í Þorlákshöfn 15.apríl

Skráning á úrtökumótið í Skeet,  laugardaginn 15.apríl, þarf að berast á sti@sti.is um helgina.

By |2023-04-08T10:04:28+00:00April 8th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Skráning á úrtökumótið í Þorlákshöfn 15.apríl

Fyrsta úrtökumótið í skeet á Álfsnesi

Fyrsta úrtökumótið af þremur fyrir val á keppendum á Smáþjóðaleikana á Möltu fór fram í dag.

By |2023-04-01T15:01:51+00:00April 1st, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Fyrsta úrtökumótið í skeet á Álfsnesi

Úrtökumót fyrir Smáþjóðaleikana á Möltu

Fyrsta úrtökumótið fyrir Smáþjóðaleikana á Möltu fer fram laugardaginn 1.apríl á skotsvæði Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi. Engin sérstök keppnisæfing verður á föstudeginum, enda ekki heimilt að skjóta á föstudögum !!. Níu keppendur skráðu sig til leiks en einn hefur forfallast vegna meiðsla. Má sjá þá hérna.

By |2023-03-30T20:51:07+00:00March 30th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Úrtökumót fyrir Smáþjóðaleikana á Möltu

Keppni á heimsbikarmótinu á Kýpur stendur nú yfir

Hákon Þór Svavarsson hóf keppni á Heimsbikarmótinu í Larnaca á Kýpur í dag. Hægt er að fylgjast með skorinu hérna. Fréttin verður uppfærð:  Hann skaut 23-22-22 eða 67 alls í dag. Seinni 50 23-19 eða alls 109 og endar hann í 84.sæti af 119 keppendum. Final í skeet kvenna er hægt að horfa á hérna. [...]

By |2023-03-28T12:18:12+00:00March 27th, 2023|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Keppni á heimsbikarmótinu á Kýpur stendur nú yfir

Skráning á úrtökumótið á Álfsnesi 1.apríl

Skráning á úrtökumótið  laugardaginn 1.apríl þarf að berast á sti@sti.is um helgina.

By |2023-03-24T12:30:06+00:00March 24th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Skráning á úrtökumótið á Álfsnesi 1.apríl

Ekki keppt í Skeet kvenna á Möltu

Mótshaldarar á Smáþjóðaleikunum á Möltu voru að tilkynna okkur að EKKI verður keppt í Skeet kvenna á leikunum, aðeins í karlaflokki. Ekki náðist lágmarksþátttaka í greininni. Annað er óbreytt í skotgreinunum Loftriffli og Loftskammbyssu, keppt verður á bæði karla- og kvennaflokki.

By |2023-03-24T12:20:12+00:00March 24th, 2023|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Ekki keppt í Skeet kvenna á Möltu

Stöðluð skammbyssa í Digranesi í dag

Landsmót í Staðlaðri skammbyssu fór fram í Kópavogi í dag. Ívar Ragnarsson úr SFK sigraði með 561 stig,  í öðru sæti varð Karl Kristinsson úr SR með 525 stig og Kolbeinn Björgvinsson úr SR vann bronsið með 473 stig. Þrjú lið kepptu og varð A lið SFK hlutskarpast með 1443 stig - með þá Ívar [...]

By |2023-03-19T20:10:18+00:00March 19th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Stöðluð skammbyssa í Digranesi í dag

Landsmót í loftbyssugreinunum í Kópavogi í dag

Í Digranesi í Kópavogi fór fram í dag Landsmót STÍ í loftbyssugreinunum.  Í loftskammbyssu karla sigraði Ívar Ragnarsson úr SFK með 566 stig , Bjarki Sigfússon úr SFK varð annar með 536 stig/8x og Guðmundur A. Hjartarson úr SK þriðji með 536 stig/6x. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 547 stig, Kristína Sigurðardóttir [...]

By |2023-03-20T13:37:40+00:00March 18th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í loftbyssugreinunum í Kópavogi í dag

Smáþjóðaleikarnir verða á Möltu 2023

Smáþjóðaleikarnir verða haldnir á Möltu dagana 29.maí til 3.júní. Í skotfimi verður keppt í haglabyssu Skeet, loftskammbyssu og loftriffli. Það fer eftir lokaskráningum hvernig skipting milli kynja verður í þessum greinum. Við munum hinsvegar hefja valferlið nú þegar en pláss er fyrir tvo keppendur í hverri grein, af hvoru kyni. Fararstjóri STÍ verður Ómar Örn [...]

By |2023-03-18T11:01:13+00:00March 9th, 2023|Uncategorized|Comments Off on Smáþjóðaleikarnir verða á Möltu 2023

Hákon keppir á Heimsbikarmótinu í Qatar í dag og á morgun

Hákon Þ. Svavarsson er að keppa á Heimsbikarmóti ISSF í Doha í Qatar í dag og á morgun. Hægt er að fylgjast með skorinu hérna   Fréttin verður uppfærð - * Fyrri dagur 72 dúfur af 75 (24-24-24) - Seinni dagur 22+25 og endar í 119 dúfum og 45.sæti af 114 keppendum, frábær árangur hjá honum.

By |2023-03-07T13:09:09+00:00March 6th, 2023|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Hákon keppir á Heimsbikarmótinu í Qatar í dag og á morgun

Landsmót í þrístöðu á Ísafirði í dag

Þórir Kristinsson úr SR sigraði á riffilmótinu á Ísafirði í dag, með 536 stig, annar varð Valur Richter úr SÍ með 519 stig og þriðji Leifur Bremnes úr SÍ með 469 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 517 stig og silfrið hlaut Guðrún Hafberg úr SÍ með 439 stig. Nánar á úrslitasíðunni

By |2023-03-06T10:38:46+00:00March 5th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í þrístöðu á Ísafirði í dag

Landsmót í 50 metra riffli á Ísafirði í dag

Landsmót STÍ í riffli á 50 metra færi úr liggjandi stöðu fór fram á Ísafirði í dag. Valur Richter úr SÍ sigraði í karlaflokki með 607,7 stig, Guðmundur Valdimarsson úr SÍ varð annar með 606,1 stig og Þórir Kristinsson úr SR varð í 3ja sæti með 606,0 stig. Í kvennaflokki vann Jórunn Harðardóttir úr SR [...]

By |2023-03-05T09:23:39+00:00March 4th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í 50 metra riffli á Ísafirði í dag

SKOTÞING 2023 verður haldið laugardaginn 22.apríl

Þing Skotíþróttasambands Íslands, SKOTÞING 2023, verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, laugardaginn 22.apríl n.k.

By |2023-02-22T11:50:41+00:00February 22nd, 2023|Uncategorized|Comments Off on SKOTÞING 2023 verður haldið laugardaginn 22.apríl

Sport skammbyssa í Kópavogi um helgina

Ívar Ragnarsson úr SFK sigraði á Landsmóti STÍ í Sport skammbyssu  sem haldið var í Kópavogi á laugardaginn með 566 stig, annar varð Jón Þór Sigurðsson úr SFK með 559 stig og í þriðja sæti Karol Forsztek úr SR með 518 stig. Nánar á úrslitasíðunni

By |2023-02-22T11:20:10+00:00February 22nd, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Sport skammbyssa í Kópavogi um helgina

Landsmót í 50m liggjandi riffli í Kópavogi í dag

Á Landsmóti STÍ í 50m liggjandi riffli, sem haldið var í Kópavogi í dag, bætti Óðinn Magnússon úr SKS eigið Íslandsmet í unglingaflokki og skaut nú 568,5 stig. Í karlaflokki sigraði Jón Þór Sigurðsson úr SFK með 622,7 stig, Guðmundur Helgi Christensen úr SR varð annar með 610,0 stig og þriðji Valur Richter úr SÍ [...]

By |2023-01-21T16:09:28+00:00January 21st, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í 50m liggjandi riffli í Kópavogi í dag

Hákon er að keppa á heimsbikarmótinu í Marokkó

Hákon Þ. Svavarsson er að keppa á heimsbikarmótinu í Marokkó í haglabyssugreininni Skeet. Hann skaut fyrstu tvo hringina í dag 23+24, næstu tveir verða skotnir á morgun og svo einn hringur á sunnudaginn. Hægt er að fylgjast með skorinu hérna. Uppfært: Hákon endaði með 113 stig (23+24+24+21+21) og hafnaði í 51.sæti af 70 keppendum

By |2023-01-15T20:08:47+00:00January 13th, 2023|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Hákon er að keppa á heimsbikarmótinu í Marokkó

Skotíþróttasambandið það sjöunda fjölmennasta innan ÍSÍ

Samkvæmt tölfræði ÍSÍ vegna ársins 2021 er Skotíþróttasamband Íslands í sjöunda sæti yfir fjölmennustu sérsambönd innan ÍSÍ, með 5.614 (4%) skráða iðkendur af alls 139.207 iðkendum. HSí er með 7.356 (5%), KKÍ 8.119 (6%), LH 12.151 (9%), FSÍ 14.264 (10%), GSÍ 23.149 (17%) og KSÍ 28.285 (20%).

By |2023-01-07T16:08:36+00:00January 7th, 2023|Uncategorized|Comments Off on Skotíþróttasambandið það sjöunda fjölmennasta innan ÍSÍ
Go to Top