Íslandsmeistaramótið í 50 m riffli fór fram í aðstöðu Skotíþróttafélags Kópavogs í  Digranesi í dag. Karen Rós Valsdóttir úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar bætti þar Íslandsmetið í unglingaflokki stúlkna með skori uppá 580,2 stig og hlaut Íslandsmeistaratitil stúlkna. Íslandsmeistarar urðu Jón Þór Sigurðsson úr SFK í karlaflokki með 622,0 stig, annar varð Arnfinnur A. Jónsson úr SFK með 612,7 stig og Valur Richter úr SÍ þriðji með 607,0 stig. Jórunn Harðardóttir úr SR varð Íslandsmeistari í kvennaflokki með 613,3 stig og silfrið hlaut Viktoría Bjarnarson úr SR með 587,1 stig. Íslandsmeistari drengja varð Óðinn Magnússon úr SKS með 566,8 stig. Nánar má sjá úrslitin á úrslitasíðu STÍ hérna.