gummiisnes

About Guðmundur Kr. Gíslasson

This author has not yet filled in any details.
So far Guðmundur Kr. Gíslasson has created 612 blog entries.

Evrópuleikarnir í Póllandi

Evrópuleikarnir eru nú haldnir í þriðja skiptið og höfum við átt keppendur á þeim öllum. Hákon Þ. Svavarsson er nú að keppa á þeim í þriðja skiptið. Til þess að öðlast keppnisrétt þarf að ná frábærum árangri á stórmótum í haglabyssugreininni Skeet sem hann gerði og tryggði sér sæti. Þessi frétt birtist á síðu ÍSÍ [...]

By |2023-06-21T17:24:32+00:00June 21st, 2023|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Evrópuleikarnir í Póllandi

Jón Þór að keppa í Sviss í riffli

Euro Cup í 300 metra riffilskotfimi fer fram í Sviss 22.-23.júní. Jón Þór Sigurðsson keppir þar við bestu skotmenn Evrópu. Hægt að fylgjast með skorinu hérna.

By |2023-06-21T17:16:26+00:00June 21st, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Jón Þór að keppa í Sviss í riffli

Jóhann sigraði á Compak Sporting mótinu um helgina

Jóhann Ævarsson úr SA sigraði á Landsmóti STÍ í haglabyssugreininni Compak Sporting um helgina með 186 stig. Jón Valgeirsson úr SR varð annar með 184 stig og í þriðja sæti hafnaði Wimol Sudee úr SA með 175 stig. Keppt var í þrjá daga með nýju fyrirkomulagi þannig að á föstudeginum voru skotnir 2 hringir á [...]

By |2023-06-19T10:51:33+00:00June 19th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Jóhann sigraði á Compak Sporting mótinu um helgina

Íslandsmót í BR50 riffilskotfimi á Akureyri

14 keppendur mættu til leiks og flestir skutu fleiri en einn flokk. Þurrt og hlýtt, en vindurinn í aðalhlutverki og var svo hvasst í hviðum á sunnudeginum að vindflögg fuku út um holt og hæðir. Árangurinn eftir því. Þó virtust unglingarnir ráða betur við vindinn. Nánari úrslit á úrslitasíðu STÍ.

By |2023-06-21T17:11:45+00:00June 13th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmót í BR50 riffilskotfimi á Akureyri

Hákon sigraði á Landsmótinu í Skeet í dag

Hákon Þ. Svavarsson úr SFS sigraði á Landsmóti STÍ í skeet sem haldið var við Þorlákshöfn í dag. Hann skoraði 52 stig í úrslitunum og 117 stig í undankeppninni. Annar varð Pétur T. Gunnarsson úr SR með 51 stig í úrslitunum og 108 stig í undankeppninni. Í þriðja sæti hafnaði Arnór L. Uzureau úr SÍH [...]

By |2023-06-11T18:32:28+00:00June 11th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Hákon sigraði á Landsmótinu í Skeet í dag

Landsmót í Norrænu Trappi um helgina

Veður var þokkalegt en vindurinn fór mest í ca. 15m í kviðum. Það var svona með svalara móti alla helgina en þó heldur mildara á sunnudeginum. 11 keppendur voru skráðir til leiks frá 4 félögum en einn forfallaðist á föstudagskvöldinu og var því ákveðið að skipta í 2 riðla í staðinn fyrir 3. Skotnir voru [...]

By |2023-06-05T08:22:26+00:00June 5th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í Norrænu Trappi um helgina

Smáþjóðaleikunum á Möltu er lokið

Keppni á Smáþjóðaleikunum á Möltu er nú lokið. Í loftriffli karla komst Guðmundur Helgi Christensen í úrslit og endaði þar í 8.sæti. Þórir Kristinsson rétt missti af sæti í úrslitum og endaði í 9.sæti. Í loftriffli kvenna náði Jórunn Harðardóttir í úrslit og endaði þar í 7.sæti. Íris Eva Einarsdóttir náði ekki í úrslit og [...]

By |2023-06-04T12:17:54+00:00June 4th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Smáþjóðaleikunum á Möltu er lokið

Ívar með silfur í dag á Smáþjóðaleikunum

Fyrsti keppnisdagurinn í skotfimi á Smáþjóðaleikunum á Möltu var í dag. Ívar Ragnarsson stóð sig frábærlega og landaði að lokum silfurverðlaunum í Loftskammbyssu karla. Hann var langefstur eftir undankeppnina með 564 stig en í úrslitunum slakaði hann aðeins á og endaði með 227,3 stig. Bjarki Sigfússon var svo fjórði inní úrslitin með 542 stig. Hann [...]

By |2023-05-31T16:21:33+00:00May 31st, 2023|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Ívar með silfur í dag á Smáþjóðaleikunum

Keppnisdagar á Möltu

Keppni hefst hjá okkar fólki á morgun, miðvikudag, á Smáþjóðaleikunum á Möltu. Annars er prógrammið þannig: 31.maí Loftskammbyssa kvenna kl.08:00 að ísl.tíma Final kl. 12:30. Nánar hérna. 31.maí Loftskammbyssa karla kl.10:15 að ísl.tíma Final kl.14:00. Nánar hérna. 2.júní Loftriffill kvenna kl.08:00 að ísl.tíma Final kl.12:00. Nánar hérna. 2.júní Loftriffill karla kl.10:15 að ísl tíma. Final [...]

By |2023-05-31T16:10:47+00:00May 30th, 2023|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Keppnisdagar á Möltu

Hákon sigraði á Landsmótinu á Akranesi

Landsmót STÍ í haglabyssugreininni Skeet fór fram um helgina á skotvelli Skotfélags Akraness. Hákon Þór Svavarsson úr SFS sigraði með 118/54 stig, í öðru sæti varð Guðlaugur Bragi Magnússon úr SA með 113/52 stig og í þriðja sæti varðp Stefán Gísli Örlygsson úr SKA með 110/45 stig.  Nánar á úrslitasíðu STÍ hérna

By |2023-05-31T16:24:39+00:00May 30th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Hákon sigraði á Landsmótinu á Akranesi
Go to Top