SKOTÞING verður haldið 18.september
SKOTÞING 2021 verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, laugardaginn 18.september í E-sal á 3.hæð og hefst það að venju kl.11:00. Um dagskrá þingsins er fjallað í lögum sambandsins sem eru aðgengileg hérna.
SKOTÞING 2021 verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, laugardaginn 18.september í E-sal á 3.hæð og hefst það að venju kl.11:00. Um dagskrá þingsins er fjallað í lögum sambandsins sem eru aðgengileg hérna.
Íþróttamannanefnd ÍSÍ hefur sett upp nýjan opinn Facebook-hóp undir nafninu Íþróttamannanefnd ÍSÍ, sjá tengil hér að neðan. Þar getur allt íþróttafólk gerst meðlimir og verið í beinu sambandi við meðlimi nefndarinnar ásamt því að geta tekið þátt í þeim umræðum sem skapast. Einnig munu þau geta haft aðgang að fræðsluefni og fróðleik sem að nefndin [...]
Fréttatilkynning Reykjavík, 18. maí 2021 Til fjölmiðla Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og sambandsaðilar þess, hafa undanfarna mánuði sóst eftir því hjá sóttvarnayfirvöldum, bæði með fundahaldi, símtölum og skriflegum erindum, að afreksíþróttafólk landsins fái forgang í bólusetningu, að loknum bólusetningum viðkvæmra hópa og heilbrigðisstarfsfólks, svo það geti með öruggari hætti tekið þátt í alþjóðlegu mótahaldi. Öllum [...]
Samkvæmt ábendingu frá lögreglu viljum við minna á að það er grímuskylda í áhorfendastúkum og biðja ykkur um að senda áminningu á ykkar aðildarfélög. Efirfarandi er tekið úr kafla um áhorfendur: Til samræmis við 5. gr, reglugerðar heilbrigðisráðherra nr. 404/2021 dags. 13. apríl 2021 er heimilt að hafa að hámarki 100 áhorfendur í einu sóttvarnarhólfi á íþróttaviðburðum [...]
Uppfærðar COVID-19 reglur tóku gildi í dag. Þær eru aðgengilegar hérna. Helstu breytingar eru þessar : Fjöldatakmörk á æfingum og í keppni eru 50 þátttakendur Fjöldatakmörk í áhorfendasvæðum eru 100 manns – og að hámarki tvö hólf Það þarf að vera með númeruð sæti, 1m á milli osfrv… Við kunnum það frá því að áhorfendur [...]
Til sambandsaðila ÍSÍ Reykjavík, 14. apríl 2021 Ágætu félagar! Heilbrigðisráðherra hefur nú gefið út nýja reglugerð sem tekur gildi 15. apríl og gildir til 5. maí nk. Með henni eru gerðar verulegar tilslakanir á íþróttastarfi á ný og verður aftur opnað fyrir starfsemi sundstaða og líkamsræktarstöðva, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Helstu breytingar í reglugerð heilbrigðisráðherra [...]
Við viljum árétta að COVID-19 reglur um iðkun skotíþrótta eru uppfærðar reglulega og eru aðgengilegar hérna. Aðildarfélögin hafa væntanlega öll tilnefnt sóttvarnarfulltrúa og geta félagsmenn viðkomandi félags snúið sér til þeirra ef einhver vafaatriði koma upp. Þeir sem þegar hafa verið tilnefndir eru hérna. Eins má auðvitað hafa samband við skrifstofu STÍ og leita ráða.
Við viljum árétta reglur um afskráningar keppenda á viðurkennd STÍ-mót. En í Móta-og keppnisreglum STÍ segir í 12. gr. : Mæti keppandi ekki til leiks, án þess að boða tilskilin forföll á sannanlegan hátt til mótshaldara, í síðasta lagi sólahring fyrir setningu móts (24 klst), skal hann greiða móta og keppnisgjald til mótshaldara. Mótshaldara er [...]
Á Landsmóti STÍ sem haldið var af Skotfélagi Reykjavíkur í Egilshöllinni í dag sigraði Jón Þór Sigurðsson úr SFK í karlaflokki með 622,4 stig. Í öðru sæti varð Guðmundur Valdimarsson úr SÍ með 618,3 stig og þriðji Valur Richter einnig úr SÍ með 610,9 stíg. Í liðakeppninni sigrði sveit SÍ með 1833,0 stig og sveit [...]
Hér eru tekin saman nokkur lykilatriði sem snúa að áhorfendum. Á þetta við um öll skotmót sem haldin eru á vegum STÍ. • Allir gestir skulu vera skráðir, a.m.k. nafn, kennitala, símanúmer og sæti. Geyma þarf upplýsingar um áhorfendur í tvær vikur eftir viðburð vegna rakningar. • Allir gestir skulu vera sitjandi í númeruðum sætum [...]
Örlítil breyting var gerð á sóttvarnarreglum STÍ og ÍSÍ fyrir skotfélögin. Breytingin er í lið 6 um áhorfendur. Reglurnar eru hérna.
Fregnir gærdagsins af tveimur innanlandssmitum utan sóttkvíar var áminning til okkar allra um hversu mikilvægt það er að vera enn á varðbergi gagnvart vágestinum. Við biðjum um að þið ítrekið við ykkar aðildarfélög mikilvægi þess að gæta áfram að ýtrustu sóttvörnum, bæði á æfingum og í keppni. Mikilvægt er að þátttakendur í íþróttum fylgi reglum [...]
Hérna eru nýjar COVID-19 reglur STÍ og ÍSÍ vegna allra skotíþróttafélaga. Linkur á pdf skjalið er þessi. Það er verið að yfirfara reglurnar og sýnist okkur að með nýrri túlkun ÍSÍ á sóttvarnarreglum geti mótahald STÍ hafist innan skamms. Verið er að rýna í orðalag en breytingin ætti að koma til birtingar síðar í dag [...]
Mótaskrá ársins 2021 í haglabyssugreinunum er komin út. Skoða má hana á síðunni hérna.
Nýjar COVID-19 reglur taka gildi á morgun. Þær má nálgast hérna
Evrópumeistaramótinu í loftbyssugreinunum sem halda átti í Finnlandi í lok febrúar hefur verið aflýst. Kvótaplássum á Ólympíuleikana í Japan sem þar voru í boði verður úthlutað eftir reglum ISSF.
Skotíþróttamaður ársins í karla og kvennaflokki verða ekki valin fyrir árið 2020. Einungis í haglagreinum hefur verið mögulegt að mæla árangur vegna fárra eða engra móta í öðrum greinum. Þetta gerir að verkum ójafnræði við val á okkar besta íþróttafólki og er valið fyrir árið 2020 því fellt niður. Í haglagreinum eru stigameistarar ársins 2020 [...]
Nýjar reglur ÍSÍ, Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, Sóttvarnarlæknis og STÍ eru komnar út og má nálgast eintak hérna. Þær taka þegar gildi og gilda til og með 12.janúar 2021. Aðildarfélög STÍ þurfa að fara eftir þeim í hvívetna og gera þær ráðstafanir sem krafist er.
Þinggerð Skotþings er komin á sinn stað hérna:
Einn þekktasti haglabyssukennari okkar, Gunnar Sigurðsson, sem lést á Kanaríeyjum 2.október, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju föstudaginn 13.nóvember og hefst athöfnin kl.13:00. Útförinni verður athöfninni streymt hérna: https://youtu.be/ORhlFEXT2cw