COVID-reglur aðildarfélaga STÍ eru uppfærðar
Að vanda hafa COVID reglurnar verið uppfærðar samkvæmt nýjustu gögnum frá yfirvöldum og eru þær aðgengilegar undir liðnum Lög og Reglur
Að vanda hafa COVID reglurnar verið uppfærðar samkvæmt nýjustu gögnum frá yfirvöldum og eru þær aðgengilegar undir liðnum Lög og Reglur
Reykjavík International Games - Skotfimin á REYKJAVÍKURLEIKUNUM 2022 verður helgina 5.-6. febrúar í Egilshöllinni í Grafarvogi. Keppt verður á laugardeginum í loftskammbyssu og á sunnudeginum í loftriffli. Keppt er í OPNUM flokkum að vanda og hefst keppnin kl. 10:00 báða dagana. Skráningu lýkur föstudaginn 28.janúar kl.18:00 og skal senda hana á sr@sr.is Keppnisgjald er kr. [...]
Til sambandsaðila ÍSÍ Reykjavík, 21. desember 2021 Sæl öll, Með pósti þessum viljum við tilkynna ykkur að Andri Stefánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Andri tekur við starfinu af Líneyju Rut Halldórsdóttur sem lét af störfum fyrr á þessu ári. Andri er 49 ára íþróttafræðingur með meistaragráðu í íþróttastjórnun og hefur starfað [...]
Á Landsmóti STÍ í 50 metra liggjandi riffli (prone) féllu tvö Íslandsmet. Fyrst í karlaflokki þar sem Jón Þór Sigurðsson úr SFK sigraði með 624,3 stig og síðar í Unglingaflokki kvenna þar sem Viktoría Erla Bjarnarson úr SR sigraði með 576,9 stig og Karen Rós Valsdóttir SÍ varð önnur með 515,7 stig. Í öðru sæti [...]
ISSF kynnti í gær nýjar reglur um Final í Ólympísku greinunum. Lesa má nánar um þær á heimasíðu þeirra hérna.
Alexander Ratner frá Rússlandi var í kvöld kjörinn forseti Evrópusambandsins ESC á ársþingi þess sem haldið er á Kýpur þessa dagana. Nánar má lesa um kjörið hérna.
75.þing Íþrótta og Ólympíusambands Íslands var haldið í dag. Nánari umfjöllun um þingið er á www.isi.is
Skotfélagi Reykjavíkur barst í dag tölvupóstur frá Heilbrigðiseftirliti Reykljavíkurborgar þar sem félaginu er gert að STÖÐVA STARFSEMI FÉLAGSINS Á ÁLFSNESI ÞEGAR Í STAÐ !! Ástæðan er úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um að ógilda ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar um útgáfu starfsleyfis fyrir starfsemi félagsins á Álfsnesi. Skotæfingasvæði er því ekki lengur til staðar í höfuðborginni og [...]
Ársþing STÍ var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag. Þingið var haldið á netinu með TEAMS-kerfinu. 30 fulltrúar frá 8 aðildarfélögum tóku þátt. Ný stjórn var kjörin og skipa hana nú Halldór Axelsson formaður, Jórunn Harðardóttir, Guðmundur Kr. Gíslason, Ómar Örn Jónsson og Helga Jóhannsdóttir. Varamenn eru Kjartan Friðriksson og Kristvin Ómar Jónsson.
Skotíþróttaþing verður haldið einsog boðað var til þann 18.september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Dagskrá þingsins er einsog segir í lögum STÍ. Ekki hefur verið óskað eftir að einhver sérstök mál verði tekin fyrir .
Í dag undirrituðu Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) samning við fyrirtækið Abler (sem rekur Sportabler hugbúnaðinn) um gerð á nýju rafrænu kerfi fyrir íþróttahreyfinguna sem ætlað er fyrir lögbundin skil á starfsskýrslum íþróttahreyfingarinnar. Kerfið mun leysa af hólmi starfsskýrsluskil í Felix, félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ, sem hefur verið í notað til [...]
Frá ÍSÍ Til sambandsaðila Reykjavík, 29. ágúst 2021 Sæl öll! Sendur var út tölvupóstur frá okkur á föstudaginn síðastliðinn, með upplýsingum um nýja reglugerð heilbrigðisráðherra. Síðan þá hefur reglugerðinni verið breytt og varðar breytingin grímunotkun í áhorfendasvæðum. Grímuskylda gildir enn í áhorfendasvæðum á íþróttaviðburðum innanhúss en grímuskylda á viðburðum utanhúss fellur niður. Eftirfarandi eru því [...]
Á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í gær var upplýst að Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands 1. október nk. Líney Rut, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra ÍSÍ í 14 ár og á um 20 ára starfsferil hjá sambandinu, mun áfram starfa fyrir ÍSÍ í öðrum verkefnum en hún [...]
SKOTÞING 2021 verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, laugardaginn 18.september í E-sal á 3.hæð og hefst það að venju kl.11:00. Um dagskrá þingsins er fjallað í lögum sambandsins sem eru aðgengileg hérna. Þingboðið er hérna og Kjörbréfið sem Héraðssamband aðildarfélaganna eða Íþróttabandalag þarf að útfylla og senda til stjórnar er hérna. Bréfin hafa verið send [...]
Rétt að minna félögin á að sóttvarnarreglurnar sem félög innan STÍ þurfa að fylgja eru aðgengilegar hérna. Á heimasíðu Sóttvarnarlæknis og Almannavarna má finna allar upplýsingar um faraldurinn.
Frá ÍSÍ: Hraðvaxandi fjölgun COVID-19 smita í samfélaginu undanfarna daga hefur nú haft þær afleiðingar að stjórnvöld hafa neyðst til að herða sóttvarnir og setja á ný takmarkanir á samkomur. Ný reglugerð heilbrigðisráðherra þar að lútandi tekur gildi sunnudaginn 25. júlí nk. og gildir til og með 13. ágúst nk. Vonast er til að hertar [...]
Forseti íslands Guðni Th. Jóhannesson og forsetafrú Eliza Jean Reid buðu Ólympíuförum og formönnum þeirra sambanda í móttöku til Bessastaða til hvatningar fyrir leikana sem hefjast 24 júlí næstkomandi. Ásgeir Sigurgeirsson keppir fyrstur Íslendinga þann 24. í Loftskammbyssu.
Hérna eru nú komin eyðublöð til útfyllingar á hringjum í skeet
Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttamaður, hefur unnið sér inn kvótapláss á Ólympíuleikana í Tókýó í loftskammbyssukeppni karla. Alþjóðaskotíþróttasambandið hefur lokið úthlutun á kvótasætum og hlaut Ísland kvótapláss í loftskammbyssukeppni karla. Ásgeir hefur áður keppt á leikunum en hann keppti á Ólympíuleikunum í London 2012, þá bæði í frjálsri skammbyssu og loftskammbyssu. Keppt verður í greininni fyrsta keppnisdag [...]
Sérsambönd ÍSÍ Héraðssambönd og íþróttabandalög Íþróttafélög og deildir þeirra Reykjavík, 3.júní 2021 Efni: #metoo/#églíka Kæru félagar! Á undanförnum vikum hefur umræða um kynbundið ofbeldi blossað upp á ný. Þolendur stíga fram, skila skömminni á réttan stað og krefjast breytinga í samfélaginu. Líkt og í fyrri bylgju #metoo/#églíka hafa komið upp á yfirborðið frásagnir af kynferðisbrotum [...]