Á Landsmóti STÍ sem haldið var af Skotfélagi Reykjavíkur í Egilshöllinni í dag sigraði Jón Þór Sigurðsson úr SFK í karlaflokki með 622,4 stig. Í öðru sæti varð Guðmundur Valdimarsson úr SÍ með 618,3 stig og þriðji Valur Richter einnig úr SÍ með 610,9 stíg. Í liðakeppninni sigrði sveit SÍ með 1833,0 stig og sveit SFK varð önnur með 1775,6 stig. Í kvennaflokki sigraði Bára Einarsdóttir úr SFK með 610,6 stig, önnur varð Jórunn Harðardóttir úr SR með 607,7 stig og í þriðja sæti hafnaði Guðrún Hafberg úr SFK með 576,2 stig.