Íþróttamannanefnd ÍSÍ hefur sett upp nýjan opinn Facebook-hóp undir nafninu Íþróttamannanefnd ÍSÍ, sjá tengil hér að neðan.
Þar getur allt íþróttafólk gerst meðlimir og verið í beinu sambandi við meðlimi nefndarinnar ásamt því að geta tekið þátt í þeim umræðum sem skapast. Einnig munu þau geta haft aðgang að fræðsluefni og fróðleik sem að nefndin setur þar reglulega inn. Tölvupóstfang nefndarinnar er imn@isi.is

Íþróttamannanefnd biður sérsamböndin um að áframsenda þessi skilaboð til íþróttamanna sinna.  https://www.facebook.com/groups/ithrottamannanefnd