Til sambandsaðila ÍSÍ

Reykjavík, 21. desember 2021

 Sæl öll,

 Með pósti þessum viljum við tilkynna ykkur að Andri Stefánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Andri tekur við starfinu af Líneyju Rut Halldórsdóttur sem lét af störfum fyrr á þessu ári.

Andri er 49 ára íþróttafræðingur með meistaragráðu í íþróttastjórnun og hefur starfað hjá ÍSÍ síðan 2002, fyrst sem sviðsstjóri Fræðslu og útbreiðslusviðs ÍSÍ og síðar sem sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ og sem staðgengill framkvæmdastjóra.

Hann hefur mikla reynslu og þekkingu á starfi íþróttahreyfingarinnar, jafnt innanlands sem erlendis, en hann hefur meðal annars verið aðalfararstjóri á Ólympíuleikum síðan 2008 og á nú sæti í Tækninefnd Smáþjóðaleika Evrópu fyrir hönd ÍSÍ.

Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti einróma að ráða Andra í starfið.

Umsækjendur voru alls 29 talsins og var ráðningarferlið í umsjá Hagvangs.

Þess má geta að unnið er að skipulagsbreytingum á skrifstofu ÍSÍ sem vonandi leiða til þess að ÍSÍ geti enn frekar bætt þjónustu við sambandsaðila sína á nýju ári.

Með bestu kveðju,

ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS

Lárus L. Blöndal

forseti