gummiisnes

About Guðmundur Kr. Gíslasson

This author has not yet filled in any details.
So far Guðmundur Kr. Gíslasson has created 754 blog entries.

Sportabler tekur við sem starfsskýrslukerfi ÍSÍ og UMFÍ

Í dag undirrituðu Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ)  samning við fyrirtækið Abler (sem rekur Sportabler hugbúnaðinn) um gerð á nýju rafrænu kerfi fyrir íþróttahreyfinguna sem ætlað er fyrir lögbundin skil á starfsskýrslum íþróttahreyfingarinnar. Kerfið mun leysa af hólmi starfsskýrsluskil í Felix, félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ, sem hefur verið í notað til [...]

By |2021-09-03T16:42:28+00:00September 3rd, 2021|Uncategorized|Comments Off on Sportabler tekur við sem starfsskýrslukerfi ÍSÍ og UMFÍ

Íslandsmót í Bench Rest og SR Open í Reykjavík um helgina

Íslandsmót STÍ í Bench Rest verður haldið á velli Skotfélags Reykjavíkur um helgina. Keppt er með rifflum á 100 og 200 metra færi. Jafnframt fer fram SR-OPEN/Reykjavíkurmót í haglabyssugreininni Skeet á sama tíma. Nánar á www.sr.is

By |2021-09-03T16:42:58+00:00September 2nd, 2021|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmót í Bench Rest og SR Open í Reykjavík um helgina

Nýjar sóttvarnarreglur frá ÍSÍ

Frá ÍSÍ Til sambandsaðila Reykjavík, 29. ágúst 2021 Sæl öll! Sendur var út tölvupóstur frá okkur á föstudaginn síðastliðinn, með upplýsingum um nýja reglugerð heilbrigðisráðherra. Síðan þá hefur reglugerðinni verið breytt og varðar breytingin grímunotkun í áhorfendasvæðum. Grímuskylda gildir enn í áhorfendasvæðum á íþróttaviðburðum innanhúss en grímuskylda á viðburðum utanhúss fellur niður. Eftirfarandi eru því [...]

By |2021-08-29T19:29:52+00:00August 29th, 2021|Uncategorized|Comments Off on Nýjar sóttvarnarreglur frá ÍSÍ

Íslandsmet á mótinu á Blönduósi um helgina

Íslandsmeistaramót í Norrænu trap á Blönduósi 28. – 29. Ágúst 14 keppendur voru skráðir til leiks en eingöngu 13 kláruðu. Það var nokkuð hvöss suð-suðvestan átt, en það fór í 17,4 metra í verstu hviðunum og hitastig um 10-14°C. Keppendur létu þetta ekki á sig og má segja að allir keppendur hafi komið og gert [...]

By |2021-08-29T19:11:43+00:00August 29th, 2021|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmet á mótinu á Blönduósi um helgina

Líney Rut lætur af störfum

Á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ í gær var upplýst að Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands 1. október nk. Líney Rut, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra ÍSÍ í 14 ár og á um 20 ára starfsferil hjá sambandinu, mun áfram starfa fyrir ÍSÍ í öðrum verkefnum en hún [...]

By |2021-08-27T10:32:32+00:00August 27th, 2021|Uncategorized|Comments Off on Líney Rut lætur af störfum

Íslandsmótið í Norrænu Trappi á Blönduósi um helgina

Íslandsmótið í haglabyssugreininni Norrænt Trap verður haldið á skotvelli skotfélagsins Markviss á Blönduósi um helgina. Nánar hérna.

By |2021-08-26T10:11:54+00:00August 26th, 2021|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótið í Norrænu Trappi á Blönduósi um helgina

Felix hafnaði í 17.sæti á Evrópumeistaramótinu

Evrópumeistaramótið í haglabyssugreininni Compak Sporting fór fram í Frakklandi um helgina. Felix Jónsson keppti í unglingaflokki og hafnaði hann í 17.sæti en keppendur voru alls 30. Í karlaflokki lenti Jón Valgeirsson í 148.sæti af 325 keppendum og Jóhann Halldórsson í 307.sæti. Nánari úrslit eru hérna.

By |2021-08-25T14:51:25+00:00August 25th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Felix hafnaði í 17.sæti á Evrópumeistaramótinu

Jón Þór með 587/23x stig í Danmörku

Jón Þór Sigurðsson hafnaði í 26.sæti á Lapua European Cup í Árósum um helgina. Keppt er í liggjandi stöðu með riffli og skotið á 300 metra færi með opnum sigtum. Skorið hjá honum var 587/23x en Íslansmet hans er 595/25x.

By |2021-08-25T11:11:00+00:00August 25th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Jón Þór með 587/23x stig í Danmörku

Hákon sigraði á Landsmóti STÍ á Akranesi

Hákon Þ. Svavarsson SFSsigraði á Landsmóti STÍ í Skeet, sem haldið var á Akranesi um helgina.  Hann var með 118/52 stig, Stefán G. Örlygsson SKA varð annar með 118/52 stig og í þriðja sæti Jakob Þ. Leifsson SFS með 114/36 stig. æÍ kvennaflokki sigraði María R. Arnfinnsdóttir SÍH með 97 stig, Helga Jóhannsdóttir varð önnur [...]

By |2021-08-23T18:08:40+00:00August 23rd, 2021|Mót og úrslit|Comments Off on Hákon sigraði á Landsmóti STÍ á Akranesi

Lapua European Cup í 300m riffli um helgina

Lapua European Cup í 300 metra riffilskotfimi fer fram í Árósum um helgina. Við eigum þar einn keppanda, Jón Þór Sigurðsson sem keppir í 300 metra liggjandi á sunnudaginn. Tenging við keppnina er á þessari slóð

By |2021-08-19T10:11:53+00:00August 19th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Lapua European Cup í 300m riffli um helgina

Landsmót STÍ í Skeet á Akranesi

Landsmót STÍ í haglabyssugreininni Skeet fer fram á Akranesi um helgina. Nánar á FB-síðu Skotfélags Akraness hérna.

By |2021-08-18T21:16:49+00:00August 18th, 2021|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót STÍ í Skeet á Akranesi

EM í Compak Sporting að hefjast

Evrópumeistaramótið í haglabyssugreininni Compak Sporting hefst á morgun. Þrír Íslendingar eru meðal keppenda, Jón Valgeirsson og Jóhann Halldórsson sem keppa í karlaflokki og Felix Jónsson í unglingaflokki. Hægt verður að fylgjast með framvindu hérna.

By |2021-08-18T21:08:02+00:00August 18th, 2021|Erlend mót og úrslit|Comments Off on EM í Compak Sporting að hefjast

SKOTÞING 2021

SKOTÞING 2021 verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, laugardaginn 18.september í E-sal á 3.hæð og hefst það að venju kl.11:00. Um dagskrá þingsins er fjallað í lögum sambandsins sem eru aðgengileg hérna. Þingboðið er hérna og Kjörbréfið sem Héraðssamband aðildarfélaganna eða Íþróttabandalag þarf að útfylla og senda til stjórnar er hérna. Bréfin hafa verið send [...]

By |2021-08-17T10:46:04+00:00August 17th, 2021|Uncategorized|Comments Off on SKOTÞING 2021

Stefán og Dagný Íslandsmeistarar í dag

Stefán G. Rafnsson úr SA og Dagný H. Hinriksdóttir úr SR urðu í dag Íslandsmeistarar í haglabyssugreininni Compak Sporting. Nánar fljótlega

By |2021-08-15T15:47:35+00:00August 15th, 2021|Mót og úrslit|Comments Off on Stefán og Dagný Íslandsmeistarar í dag

Sóttvarnarreglur STÍ og ÍSÍ

Rétt að minna félögin á að sóttvarnarreglurnar sem félög innan STÍ þurfa að fylgja eru aðgengilegar hérna.  Á heimasíðu Sóttvarnarlæknis og Almannavarna má finna allar upplýsingar um faraldurinn.

By |2021-08-13T15:22:09+00:00August 13th, 2021|Uncategorized|Comments Off on Sóttvarnarreglur STÍ og ÍSÍ

Helga og Stefán Íslandsmeistarar í Skeet

Íslandsmeistaramótið í haglabyssugreininni Skeet fór fram á velli Skotíþróttafélags Suðurlands við Þorlákshöfn um helgina. Í karlaflokki varð Stefán Gísli Örlygsson úr Skotfélagi Akraness Íslandsmeistari, í kvennaflokki Helga M. Jóhannsdóttir úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar, í Unglingaflokki Daníel Logi Heiðarsson úr Skotfélagi Akureyrar og í liðakeppninni sveit Skotfélags Reykjavíkur. Einnig voru Íslandsmeistarar í hverjum flokki krýndir. Nánar má [...]

By |2021-08-08T21:22:29+00:00August 8th, 2021|Mót og úrslit|Comments Off on Helga og Stefán Íslandsmeistarar í Skeet

Jón Þór Íslandsmeistari í 300 m riffli

Það er ekki hægt að segja að veðrið hafi verið versti óvinur keppanda í dag þó svo að vindar hafi verið pínulítið að stríða með með hægum sviftingum frá suðaustri til suðvesturs. Sólin glenti sig og þá var erfitt að sjá á sigtin og bullandi tíbrá. Mótið gekk með eindæmum vel fyrir sig og fengu [...]

By |2021-08-08T09:15:20+00:00August 8th, 2021|Mót og úrslit|Comments Off on Jón Þór Íslandsmeistari í 300 m riffli

Íslandsmótið í Skeet um helgina

Íslandsmótið í haglabyssugreininni SKEET fer fram á velli Skotíþróttafélags Suðurlands um helgina. Keppni hefst kl.10 laugardag og sunnudag. Úrslitin fara svo fram eftir hádegi á sunnudaginn. Keppendur eru 24 talsins og eru allir bestu keppendur landsins skráðir til leiks. Hér má sjá riðlaskiptinguna.

By |2021-08-05T20:58:27+00:00August 5th, 2021|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótið í Skeet um helgina

Landsmót í Compak Sporting á Akureyri

Landsmót STÍ í Compak Sporting fór fram á Akureyri um helgina. Í karlaflokki sigraði Ævar Sveinn Sveinsson úr SÍH með 178 stig, Þórir Guðnason úr SÍH varð annar með 176 eftir bráðabana við Jóhann Ævarsson úr SA. Í kvennaflokki sigraði Dagný H. Hinriksdóttir úr SR með 154 stig, Líf Katla Angelica úr SA varð önnur [...]

By |2021-07-25T19:20:13+00:00July 25th, 2021|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í Compak Sporting á Akureyri

Skeet á Ólympíuleikunum

Keppni í haglabyssugreininni Skeet stendur nú yfir á Ólympíuleikunum. Hægt er að fylgjast með skorinu í  kvennakeppninni hérna og karlakeppninni hérna. Úrslitakeppnin (Final) í kvenna er á mánudaginn kl. 05:50 að okkar tíma og í karla kl. 06:50 Dagskrá allra skotgreinanna á ÓL er annars aðgengileg hérna fyrir alla áhugasama. Munið bara að Japanir eru [...]

By |2021-07-25T08:25:04+00:00July 25th, 2021|Mót og úrslit|Comments Off on Skeet á Ólympíuleikunum
Go to Top