Mót og úrslit

Ívar Íslandsmeistari í Staðlaðri skammbyssu

Íslandsmót í skammbyssugreininni Stöðluð skammbyssa fór fram í Digranesi í dag. Ívar Ragnarsson úr SFK sigraði með 553 stig, Karl Kristinsson úr SR varð annar með 518 stig og Karol Forsztek úr SR varð þriðji með 509 stig. Lið SR varð Íslandsmeistari. Nánar á úrslitasíðu STÍ hérna.

By |2023-05-19T23:11:14+00:00May 6th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Ívar Íslandsmeistari í Staðlaðri skammbyssu

Landsmóti í Skeet í Reykjavík frestað

Skotfélag Reykjavíkur hefur óskað eftir frestun á landsmótinu í skeet sem halda átti dagana 13.-14.maí þar sem ekki fékkst heimild frá Heilbrigðiseftirliti til að fylgja reglum um æfingadag. Fundin verður önnur dagsetning síðar.

By |2023-05-05T17:55:03+00:00May 4th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmóti í Skeet í Reykjavík frestað

Landsmót í Skeet um helgina

Fyrsta Landsmót sumarsins í haglabyssugreininni skeet fór fram á velli Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar um helgina. Gunnar Gunnarsson úr SFS sigraði með 109/45 eftir bráðabana við Pétur Gunnarsson sem varð annar með 114/49 og tryggðu þeir sér þar með farseðilinn á smáþjóðaleikana á Möltu í lok þessa mánaðar. Þriðji varð svo Daníel Logi Heiðarsson úr SÍH með [...]

By |2023-05-02T18:06:04+00:00May 2nd, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í Skeet um helgina

Íslandsmót í Loftriffli og Grófri skammbyssu í Egilshöllinni í dag

Íslandsmeistaramót í Loftriffli og Grófri skammbyssu fóru fram í Egilshöllinni í dag. Í loftriffli kvenna sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 590,4 stig og Íris Eva Einarsdóttir hlaut silfrið með 580,6 stig. Í karlaflokki sigraði Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 589,4 stig, Þórir Kristinsson annar með 571,3 stig og í þriðja sæti hafnaði Leifur [...]

By |2023-04-30T13:49:03+00:00April 30th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmót í Loftriffli og Grófri skammbyssu í Egilshöllinni í dag

Íslandsmeistarar í Egilshöll í dag

Íslandsmeistaramótið í Loftskammbyssu fór fram í Egilshöllinni í dag. Ívar Ragnarsson úr SFK sigraði í karlaflokki með 566 stig, Bjarki Sigfússon úr SFK varð annar með 546 stig og þriðji Magnús Ragnarsson úr SKS með 530 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 550 stig, Kristína Sigurðardóttir úr SR varð önnur með 529 [...]

By |2023-04-30T14:00:59+00:00April 29th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmeistarar í Egilshöll í dag

Grófbyssumótið frestast um viku

Af óviðráðanlegum orsökum frestast Íslandsmótið í Grófri skammbyssu sem halda átti í Digranesi sunnudaginn 23.apríl til sunnudagsins 30.apríl og verður það haldið í EGILSHÖLL !  Við ætlum að leyfa nýjar skráningar á það mót og miðast skráningarfrestur við miðnætti 23.apríl ! Nánar á www.sr.is

By |2023-04-27T09:12:17+00:00April 21st, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Grófbyssumótið frestast um viku

Íslandsmeistarar í Þrístöðuriffli

Íslandsmeistaramót STÍ í 50m Þrístöðu riffli fór fram í Egilshöllinni í dag. Íslandsmeistarar urðu Þórir Kristinsson úr SR í karlaflokki, Viktoría Erla Bjarnarson úr SR í kvennaflokki og lið Skotfélags Reykjavíkur í liðakeppni. Nánar hérna.

By |2023-04-17T21:16:27+00:00April 16th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmeistarar í Þrístöðuriffli

Íslandsmet hjá Karenu Rós Valsdóttur í 50 m riffilkeppninni í dag

Íslandsmeistaramótið í 50 m riffli fór fram í aðstöðu Skotíþróttafélags Kópavogs í  Digranesi í dag. Karen Rós Valsdóttir úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar bætti þar Íslandsmetið í unglingaflokki stúlkna með skori uppá 580,2 stig og hlaut Íslandsmeistaratitil stúlkna. Íslandsmeistarar urðu Jón Þór Sigurðsson úr SFK í karlaflokki með 622,0 stig, annar varð Arnfinnur A. Jónsson úr SFK [...]

By |2023-04-15T20:28:36+00:00April 15th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmet hjá Karenu Rós Valsdóttur í 50 m riffilkeppninni í dag

Úrtökumót númer tvö í Þorlákshöfn á laugardaginn

Úrtökumót STÍ í Skeet númer tvö í röðinni fyrir Smáþjóðaleikana á Möltu fer fram á velli SFS við Þorlákshöfn á laugardaginn. Mótið hefst kl.10:00 og verða skotnir fjórir hringir. 9 skotmenn eru skráðir til leiks og er þeim skipt í tvo riðla sem sjá má hérna. Úrslitin eru komin  hérna

By |2023-04-15T13:23:41+00:00April 11th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Úrtökumót númer tvö í Þorlákshöfn á laugardaginn

Skráning á úrtökumótið í Þorlákshöfn 15.apríl

Skráning á úrtökumótið í Skeet,  laugardaginn 15.apríl, þarf að berast á sti@sti.is um helgina.

By |2023-04-08T10:04:28+00:00April 8th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Skráning á úrtökumótið í Þorlákshöfn 15.apríl

Fyrsta úrtökumótið í skeet á Álfsnesi

Fyrsta úrtökumótið af þremur fyrir val á keppendum á Smáþjóðaleikana á Möltu fór fram í dag.

By |2023-04-01T15:01:51+00:00April 1st, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Fyrsta úrtökumótið í skeet á Álfsnesi

Úrtökumót fyrir Smáþjóðaleikana á Möltu

Fyrsta úrtökumótið fyrir Smáþjóðaleikana á Möltu fer fram laugardaginn 1.apríl á skotsvæði Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi. Engin sérstök keppnisæfing verður á föstudeginum, enda ekki heimilt að skjóta á föstudögum !!. Níu keppendur skráðu sig til leiks en einn hefur forfallast vegna meiðsla. Má sjá þá hérna.

By |2023-03-30T20:51:07+00:00March 30th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Úrtökumót fyrir Smáþjóðaleikana á Möltu

Skráning á úrtökumótið á Álfsnesi 1.apríl

Skráning á úrtökumótið  laugardaginn 1.apríl þarf að berast á sti@sti.is um helgina.

By |2023-03-24T12:30:06+00:00March 24th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Skráning á úrtökumótið á Álfsnesi 1.apríl

Stöðluð skammbyssa í Digranesi í dag

Landsmót í Staðlaðri skammbyssu fór fram í Kópavogi í dag. Ívar Ragnarsson úr SFK sigraði með 561 stig,  í öðru sæti varð Karl Kristinsson úr SR með 525 stig og Kolbeinn Björgvinsson úr SR vann bronsið með 473 stig. Þrjú lið kepptu og varð A lið SFK hlutskarpast með 1443 stig - með þá Ívar [...]

By |2023-03-19T20:10:18+00:00March 19th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Stöðluð skammbyssa í Digranesi í dag

Landsmót í loftbyssugreinunum í Kópavogi í dag

Í Digranesi í Kópavogi fór fram í dag Landsmót STÍ í loftbyssugreinunum.  Í loftskammbyssu karla sigraði Ívar Ragnarsson úr SFK með 566 stig , Bjarki Sigfússon úr SFK varð annar með 536 stig/8x og Guðmundur A. Hjartarson úr SK þriðji með 536 stig/6x. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 547 stig, Kristína Sigurðardóttir [...]

By |2023-03-20T13:37:40+00:00March 18th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í loftbyssugreinunum í Kópavogi í dag

Landsmót í þrístöðu á Ísafirði í dag

Þórir Kristinsson úr SR sigraði á riffilmótinu á Ísafirði í dag, með 536 stig, annar varð Valur Richter úr SÍ með 519 stig og þriðji Leifur Bremnes úr SÍ með 469 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 517 stig og silfrið hlaut Guðrún Hafberg úr SÍ með 439 stig. Nánar á úrslitasíðunni

By |2023-03-06T10:38:46+00:00March 5th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í þrístöðu á Ísafirði í dag

Landsmót í 50 metra riffli á Ísafirði í dag

Landsmót STÍ í riffli á 50 metra færi úr liggjandi stöðu fór fram á Ísafirði í dag. Valur Richter úr SÍ sigraði í karlaflokki með 607,7 stig, Guðmundur Valdimarsson úr SÍ varð annar með 606,1 stig og Þórir Kristinsson úr SR varð í 3ja sæti með 606,0 stig. Í kvennaflokki vann Jórunn Harðardóttir úr SR [...]

By |2023-03-05T09:23:39+00:00March 4th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í 50 metra riffli á Ísafirði í dag

Sport skammbyssa í Kópavogi um helgina

Ívar Ragnarsson úr SFK sigraði á Landsmóti STÍ í Sport skammbyssu  sem haldið var í Kópavogi á laugardaginn með 566 stig, annar varð Jón Þór Sigurðsson úr SFK með 559 stig og í þriðja sæti Karol Forsztek úr SR með 518 stig. Nánar á úrslitasíðunni

By |2023-02-22T11:20:10+00:00February 22nd, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Sport skammbyssa í Kópavogi um helgina

Landsmót í 50m liggjandi riffli í Kópavogi í dag

Á Landsmóti STÍ í 50m liggjandi riffli, sem haldið var í Kópavogi í dag, bætti Óðinn Magnússon úr SKS eigið Íslandsmet í unglingaflokki og skaut nú 568,5 stig. Í karlaflokki sigraði Jón Þór Sigurðsson úr SFK með 622,7 stig, Guðmundur Helgi Christensen úr SR varð annar með 610,0 stig og þriðji Valur Richter úr SÍ [...]

By |2023-01-21T16:09:28+00:00January 21st, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í 50m liggjandi riffli í Kópavogi í dag

Landsmót í loftbyssugreinum í Egilshöll í dag

Landsmót STÍ í loftbyssugreinunum fór fram í Egilshöll í dag. Í loftskammbyssu sigraði Ívar Ragnarsson úr SFK með 558 stig, Bjarki Sigfússon varð annar með 533 stig og þriðji Björgvin Sigursson úr SK með 511 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 536 stig og Aðaleheiður L. Guðmundsdóttir úr SSS varð önnur með [...]

By |2023-01-07T16:07:02+00:00January 7th, 2023|Mót og úrslit|Comments Off on Landsmót í loftbyssugreinum í Egilshöll í dag
Go to Top