Stjórnarfundur 11.4.2025 kl 12:00

Mættir eru: Guðmundur Kr,  Ómar Örn, Magnús Ragnarsson, Halldór Axelsson, Jórunn Harðardóttir, Heiða Lára

Dagsskrá

  1. Námskeið og önnur verkefni framundan.
    1. Afreksmótunarnámskeið með Peter er að verða frágengið. Einnig er í vinnslu að fá Mark. Farið yfir stuðningshóp á vegum ÍSÍ sem eru í boði fyrir afreksfólk.
    2. Farið yfir verkefni með Anne Grete í afreksmótun í riffillgreinum. Verið að finna dagssetningar.
    3. Farið yfir æfingar og mót framundan hjá Hákoni, Jóni Þór og fleirum.
    4. Hákon Þór er núna í 48. Sæti heimslista ISSF í Skeet, sem eru mjög góðar fréttir.
    5. Norðurlandamót í sporting. Þetta er í fyrsta skipti sem STÍ sendir landslið á sporting mót. Samkvæmt tilkmælum STÍ getur STÍ greitt mótagjöld fyrir mest 3 efstu.
  2. Skotþing.
    1. Farið yfir þingið, hvað er komið inn. Farið yfir það sem hefur komið inn.
    2. Lagt til að formannafundur verði haldinn á næsta tímabili en hefur legið niðri
    3. Tvö félög hafa ekki kjörgengi á þinginu þar sem þeir skiluðu ekki inn skýrslu á síðasta ári. Þau mega senda áheyrnafulltrúa að mati stjórnar
  3. Önnur mál.
    1. Kostnaður á farangri hjá Icelandair fyrir íþróttamenn á vegum STÍ.
      1. Lagt til að STÍ fari í vinnu við að semja við Icelandair um að fá styrk á móti til að lækka þessi gjöld fyrir þá sem keppa á vegum STÍ. Formaður fer í að ræða við ÍSÍ first til að fá tengiliði.

 

Ekki fleira gert á fundinum og honum slitið 13:00