Í dag fór fram síðasta skammbyssumót vetrarins, Íslandsmeistaramót í Staðlaðri skammbyssu. Skemmst er frá því að segja að Íslandsmeistari varð Björgvin Sigurðsson úr Skotdeild Keflavíkur, annar varð Karl Kristinsson úr Skotfélagi Reykjavíkur og þriðji varð Adam Ingi Höybye Franksson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs.