Íslandsmótið í loftskammbyssu fór fram í Egilshöllinni í dag. Í karlaflokki sigraði Adam Ingi Höyebye úr SFK með 225,9 stig (522), Bjarki Sigfússon úr SFK varð annar með 217,0 stig(544) og Bjarni Sigurðsson úr SK varð þriðji með 183,6 stig(504). Í kvennaflokki sigraði Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir úr SSS með 219,8 stig(499), Maria Lagou úr SFK hlaut silfrið með 213,6 stig(508) og Tatjana Jastsuk úr SFK varð í þriðja sæti með 193,3 stig(495). Í sviga er skorið úr undankeppninni en 8 efstu úr karla og kvennaflokki komust í úrslitakeppnina. Úlfar Sigurbjarnarson úr SR varð Íslandsmeistari drengja og Elín Kristín Ellertsdóttir úr SKS varð Íslandsmeistari stúlkna. Elís Hugi Dagsson úr SFK varð Íslandsmeistari fatlaðra. Lið Skotfélags Reykjavíkur varð Íslandsmeistari í liðakeppninni með 1,575 stig, a-lið Skotíþróttafélags Kópavogs hlaut silfrið með 1,574 stig og b-sveit Skotíþróttafélags Kópavogs í þriðja sæti með 1,503 stig. Nánar á úrslitasíðunni
Íslandsmótið í loftskammbyssu í dag
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2026-05-02T20:36:22+00:00May 2nd, 2026|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótið í loftskammbyssu í dag