Íslandsmótið í keppni með Loftrifflum fór fram í Egilshöllinni í dag. Í karlaflokki sigraði Valur Richter úr SÍ með 226,5 stig(570,6), Sigurbjörn J. Gunnarsson úr SR varð annar með 148,1 stig(555,0) og Leifur Bremnes úr SÍ þriðji með 103,9 stig(569,9). Í kvennaflokki sigraði íris Eva Einarsdóttir úr SR með 202,8 stig(585,7), Jórunn Harðardóttir úr SR varð önnur með 189,9 stig(599,3) og í þriðja sæti varð Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir úr SSS. Íslandsmeistari í stúlknaflokki varð Sigurlína W. Magnúsdóttir úr SR og í flokki drengja varð Úlfar Sigurbjarnarson úr SR íslandsmeistari á nýju Íslandsmeti í drengjaflokki, 224,8 stig. Þór Þórhallsson úr SFK er Íslandsmeistari í flokki fatlaðra. A-lið Skotfélags Reykjavíkur varð svo Íslandsmeistari í flokki liða.
Íslandsmet féll á Íslandsmótinu í Loftriffli í dag
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2026-05-03T14:49:35+00:00May 3rd, 2026|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmet féll á Íslandsmótinu í Loftriffli í dag