Landsmót í Compak Sporting fór fram um helgina á svæði Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar. Skotnar voru 200 dúfur 125 í gær laugardag og 75 í dag, Skotfélag Reykjavíkur átti 5 keppendur á mótinu. Jóhann Ævarsson frá Skotfélagi Akureyrar sigraði á 180 dúfum, Jón Valgeirsson frá Skotfélagi Reykjavikur og Theodór Þórólfsson frá Skotfélagi Akureyrar voru jafnir á 179 dúfum en Jón hafði betur í shoot off og tók annað sætið og Theodór endaði 3. Fjögur lið voru skráð til keppni og hafnaði sveit Skotfélags Akureyrar í 1 sæti á 527, en hana skipaði Jóhann Ævarsson, Theodór Þórólfsson og Jónmundur Guðmarsson. Sveit Skotfélags Reykjavíkur var önnur á 506 dúfum en hana skipaði Jón Valgeirsson, Þorri Helgason og Dagný H.Hinriksdóttir. Í þriðja sæti var svo B sveit Skotíþróttafélags Hafnafjarða á 480 dúfum, en hana skipaði Ásbjörn Sírnir Arnarsson, Timo Salsola og Bæring Ágústson. Í unglingaflokki sigraði Hergill Henning Kristinsson úr Skotíþróttafélagi Hafnafjarðar á 151 dúfu.
Jóhann Ævarsson sigraði í dag
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2026-05-10T20:20:11+00:00May 10th, 2026|Mót og úrslit|Comments Off on Jóhann Ævarsson sigraði í dag