Núna á sunnudaginn fór fram Íslandsmeistarmót í 50 m liggjandi riffli og 50 m þrístöðu í aðstöðunni okkar í Digranesi. Alls voru 17 keppendur í liggjandi riffli og 6 keppendur í þrístöðunni.
Í kvennaflokki í liggjandi rifflinum var Jórunn Harðardóttir í Skotfélagi Reykjavíkur hlutskörpust með 605,3 stig, önnur var Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir úr Skotfélagi Snæfellsnes og þriðja var Íris Eva Einarsdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur.
Í karlaflokki skaut Jón Þór Sigurðsson í Skotíþróttafélagi Kópavogs manna besti en hann skaut 626,2 stig, annar var Valur Richter með 616,4 stig, og þriðji var Leifur Bremnes með 609,5 stig en þeir keppa báðir fyrir Skotíþróttafélag Ísafjarðar.
Úlfur Sigurbjarnarson í Skotfélagi Reykjavíkur skaut svo 590,1 stig í drengjaflokki og Karen Rós Valsdóttir í Skotíþrottafélagi Ísafjarðar 545,1 í stúlkuflokki.
Í liðakeppninni var lið Skotíþróttafélags Ísafjarðar stigahæst, lið Skotíþróttafélags Kópavogs í öðru sæti, og lið Skotfélags Reykjavíkur í því þriðja.
Í þrístöðunni skaut Leifur Bremnes manna best, en hann skaut 514 stig, en Valur Richter og Sigurbjörn Jón Gunnarsson (SR) voru jafnir með 512 stig í öðru og þriðja sæti. Í kvennaflokki var Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir hæst með 519 stig, en Jórunn Harðardóttir önnur með 509 stig. Úlfur Sigurbjarnarson skaut svo 546 stig í drengjaflokki, og var þannig hæstur allra keppanda sem verður að teljast vel gert fyrir keppanda í hans flokki.
Þökkum öllum keppendum kærlega fyrir þáttökuna!