Jón Þór Sigurðsson hafnaði í 16.sæti í keppni með riffli á 50 metra færi liggjandi á Evrópumeistaramótinu í Osijek í Króatíu með 624,4 stig og Valur Ricther varð í 50.sæti með 614,1 stig. Evrópumeistari varð Thomas Mathis frá Austurríki með 628,9 stig. Þess má geta að Íslandsmet Jóns Þórs, sem hann setti á móti í Danmörku fyrir mánuði síðan, er 629,8 stig. Jón Þór keppti einnig fyrir viku síðan í sömu grein en á 300 metra færi og landaði þar 11.sæti með 594 stig. Evrópumeistari í þeirri grein varð annar Austurríkismaður, Alexander Schmirl með 598 stig en Íslandsmet Jóns í þeirri grein er 599 stig síðan í fyrra.
Evrópumeistaramótinu í Króatíu lokið
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2026-05-10T08:55:25+00:00May 10th, 2026|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Evrópumeistaramótinu í Króatíu lokið