48. Skotíþróttaþing fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag. Stjórn STÍ var endurkjörin í heild sinni og er þannig skipuð, Halldór Axelsson formaður, Jórunn Harðardóttir varaformaður, Guðmundur Kr. Gíslason gjaldkeri og Ómar Örn Jónsson meðstjórnandi í aðalstjórn og í varastjórn voru kjörin þau Valur Richter og Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir. Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ mætti og talaði til þingheims. Eins var Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ einnig mættur. Þingforseti var Jón S. Ólason fyrrverandi formaður STÍ. Þingfulltrúar voru 32 frá 11 aðildarfélögum STÍ en 5 félög sáu sér ekki fært að mæta að þessu sinni. Þingið gekk vel fyrir sig og voru lög sambandsins uppfærð með töluverðum breytingum.