Íslandsmeistarar í Compak Sporting í dag
Íslandsmeistaramót Skotíþróttasambands Íslands í haglabyssugreininni “Compak Sporting” fór fram á skotsvæði Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi um helgina. Í greininni er skotið á 100 leirdúfur hvorn daginn og er mest hægt að ná 200 stigum í keppninni. Í kvennaflokki sigraði Dagný Huld Hinriksdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 158 stig, í öðru sæti varð Snjólaug María Jónsdóttir [...]














