Landsmót STÍ í 50 metra riffli
Jón Þór Sigurðsson, Skotíþróttafélagi Kópavogs, sigraði í Landsmóti STÍ í 50m liggjandi riffli sem haldið var í Íþróttahúsinu Digranesi laugardaginn 10. febrúar. Skor Jóns Þór var 623,0 stig sem var 0,7 stigum frá Íslandsmeti hans. Arnfinnur Auðunn Jónsson, einnig úr SFK, varð í öðru sæti með 618,5 stig og Guðmundur Valdimarsson, Skotíþróttafélagi Ísafjarðarbæjar, varð þriðji [...]