Norðurlandamótinu frestað til 2021
Norðurlandamótinu sem halda átti í Finnlandi í júní hefur verið frestað til ársins 2021. Nánari tímasetning kemur síðar. https://www.nordicshootingregion.com/
Norðurlandamótinu sem halda átti í Finnlandi í júní hefur verið frestað til ársins 2021. Nánari tímasetning kemur síðar. https://www.nordicshootingregion.com/
Öllum STÍ-mótum framað 1.júní hefur verið aflýst eða frestað. Nánar á mótasíðunni. Ákvörðun um STÍ-mót síðar í sumar verður tekin seinni hluta maí og þá í samráði við ÍSÍ og Landlækni. Við minnum á eftirfarandi áréttingu: Frá ÍSÍ: Eftirfarandi árétting barst frá sóttvarnalækni í dag í tilefni útgáfu leiðbeinandi viðmiða frá heilbrigðisráðuneyti og mennta- og [...]
STÍ hvetur aðildarfélögin til að fara eftir tilmælum Sóttvarnarlæknis um að fella niður æfingar hjá öllum iðkendum, ungum sem öldnum, þar til annað verður ákveðið. Þetta á við um skotsvæðin, inni sem úti, og þýðir að svæðin skulu vera lokuð öllum. Frá ÍSÍ: Eftirfarandi árétting barst frá sóttvarnalækni í dag í tilefni útgáfu leiðbeinandi viðmiða [...]
Ársþingi Skotíþróttasambandsins sem halda átti laugardaginn 4.apríl 2020 er frestað af augljósum ástæðum um óákveðinn tíma.
Allt íþróttastarf fellur niður Heilbrigðisráðuneytið, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið, hefur sent frá sér leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar þegar kemur að íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Hvað varðar íþróttastarf barna og ungmenna er eftirfarandi beint til [...]
Starfsskýrslur ÍSÍ og UMFÍ 17.03.2020Í ljósi þeirra aðstæðna sem upp eru komnar í samfélaginu þessa stundina og þá ekki síst samkomubannsins sem hamlar því að einingar í íþróttahreyfingunni ljúki sínum aðalfundum og ársþingum, þá hefur ÍSÍ og UMFÍ ákveðið að framlengja frest til að skila inn starfsskýrslum í Felix til 1. júní nk. Þau íþróttafélög [...]
Í ljósi nýrra aðgerða stjórnvalda til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19 veirunnar hefur stjórn sambandsins ákveðið að loka fresta öllu mótahaldi á vegum STÍ frá og með mánudeginum 16.mars til 14.apríl. Tekin verður ákvörðun um framhaldið síðar.
VIð áttum 4 keppendur á heimbikarmótinu á Kýpur sem var að ljúka. Alls mættu um 80 keppendur til leiks. Sigurður Unnar Hauksson varð í 50.sæti með 117 stig (24 23 23 25 22), Stefán Gísli Örlygsson varð í 60.sæti með 113 stig (24 20 24 23 22) og Hákon Þór Svavarsson í 66.sæti með 110 [...]
Prufuleikunum fyrir Ólympíuleikana í Tókýó hefur verið aflýst. Hér kemur tilkynning vegna þess: Dear Presidents of National Federations and Shooters of the World, Based on the advice and recommendation from ISSF, Tokyo 2020 has decided to cancel the Shooting Test Event as an international competition due to the situation of the Coronavirus. For the refund [...]
Skotþing 2020 verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 4.apríl og hefst kl.11:00. Fundarboð var sent á öll Íþróttabandalög og Héraðssambönd frá ÍSÍ mánudaginn 2.mars og ættu því öll aðildarfélög að vera komin með fundarboðið. Dagskrá er samkvæmt lögum STÍ. Hugsanlega mun Covid-19 málið hafa áhrif á dagsetningu þings en það skýrist þegar nær dregur.
Ásgeir Sigurgeirsson keppti á Evrópumeistaramótinu í loftskammbyssu í dag. Mótið er haldið í Wroclaw í Póllandi. Hann hafnaði í 38.sæti af 83 keppendum. Skorið hjá honum var 573 (94 98 93 97 97 94) en til að komast í átta manna úrslit þurfti 580 stig.
Landsmót STÍ í Staðlaðri skammbyssu fór fram í Egilshöllinni í dag. Jón Þór Sigurðsson úr SFK sigraði með 540 stig, annar varð Karl Kristinsson úr SR með 526 stig og í þriðja sæti hafnaði Þórður Ívarsson úr SA með 523 stig. Nánar á úrslitasíðunni
Landsmót STÍ í loftbyssugreinunum var haldið í Kópavogi á laugardaginn. Í loftskammbyssu karla sigraði Ásgeir Sigurgeirsson úr SR með 578 stig, annar varð Peter Martisovic úr SFK með 544 og í þriðja sæti hafnaði Karl Kristinsson úr SR einnig með 544 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Haðrardóttir úr SR með 548 stig og Aðalheiður Lára [...]
Landsmót STÍ í 50m Riffli fór fram í Kópavogi laugardaginn 8.febrúar. Í karlaflokki jafnaði Jón Þór Sigurðsson úr SFK eigið Íslandsmet með 623,7 stig. Í öðru sæti varð Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 618,2 stig og Guðmundur Valdimarsson úr SÍ þriðji með 613,5 stig. Í liðakeppninni sigraði sveit SÍ með 1817,4 stig, sveit SFK [...]
Landsmótunum sem halda átti á Akureyri um næstu helgi í Sport-og Grófri skammbyssu hefur verið aflýst.
Landsmót í Þrístöðu-riffli fór fram í Kópavogi á sunnudaginn. Guðmundur Helgi Christensen úr SR sigraði með 1,112 stig, Theodór Kjartansson úr SK varð annar með 1,010 stig og þriðji varð Valur Richter úr SÍ með 1,008 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 1,089 stig og Guðrún Hafberg úr SFK varð önnur með [...]
Keppni í Loftskammbyssu fór fram á laugardeginum á Reykjavíkurleikunum. Í úrslitum sigraði Ívar Ragnarsson með 236,3 stig, Peter Martisovic frá Slóvakíu varð annar með 224,1 stig og Jón Þór Sigurðsson varð þriðji með 203,7 stig. Sóley Þórðardóttir stóð sig frábærlega í úrslitunum og endaði þar í 6.sæti með 142,1 stig. Það er nýtt Íslandsmet unglinga [...]
Jón Þór Sigurðsson riffilskytta keppti á Aarhus Open í 50m liggjandi fyrr í mánuðinum. Keppti hann í fjórum mótum og uppskar 1 gull, 1 silfur og tvö brons. Skorin hjá honum voru einnig mjög góð, 619,2 - 622,7 - 621,6 og 622,5 stig. Íslandsmet hans er 623,7 stig sem hann setti vorið 2016.
Keppni á einu stærsta móti árisins í loftskammbyssu er nú lokið í München í Þýskaland, H&N CUP. Við áttum þar einn keppanda, Ásgeir Sigurgeirson, og hafnaði hann í 18.sæti á laugardaginn en keppendur voru 99 talsins. Hann endaði með 578 stig (97 98 96 96 97 94) og vantaði aðeins 3 stig til að komast [...]
Á Landsmóti STÍ í Þrístöðu-riffli sem haldið var í Egilshöllinni í Reykjavík í dag sigraði Guðmundur Helgi Christensen úr SR í karlaflokki með 1,114 stig, annar varð Theodór Kjartansson úr SK með 1,006 stig og í þriðja sæti Leifur Bremnes úr SÍ með 950 stig. Í kvennaflokki hlaut Jórunn Harðardóttir úr SR gullið með 1,088 [...]