Íslandsmeistaramótið í Bench Rest Skor riffli fór fram á velli Skotfélags Húsavíkur um helgina. Skotið var á 100 og 200 metra færi, 25 skot á hvort færi. Íslandsmeistari varð Arnar Oddsson úr Skotfélagi Akureyrar með 495 stig og 25 X-tíur, Jóhannes Frank Jóhannesson úr Skotdeild Keflavíkur varð annar með 494 stig og 15 X-tíur og þriðji varð Kristján Arnarson úr Skotfélagi Húsavíkur með 492 stig og 27 X-tíur.

Nánar á úrslitasíðu STÍ hérna.