8 keppendur frá 2 félögum tóku þátt í Íslandsmeistaramótinu í Norrænu trapi sem haldið var hjá Skotfélaginu Markviss á Blönduósi. Skotnar voru 4 umferðir fyrri daginn og var veður með ágætum þó lítið sæist til sólar og stöku skúrir. Seinni daginn var lognið að flýta sér aðeins meira þegar skotnar voru síðustu 2 umferðirnar og úrslitahringur í karlaflokki. 2 lið tókust á í liðakeppninni, Markviss A (Jón Axel, Elyass K og Snjólaug) og Markviss B (Alda, Ólafur og Haraldur) það fór svo að A liðið varð Íslandsmeistari á 316 stigum og B liðið í öðru sæti á 234 stigum. Íslandsmeistari unglinga er Ólafur Benóný Hafliðason MAV, á 98 dúfum. Íslandsmeistari í kvennaflokk er Snjólaug M Jónsdóttir MAV, á 112 dúfum og Alda Albertsdóttir MAV í öðru á 44 dúfum. Í karlaflokk er Íslandsmeistari Guðmann Jónasson MAV, á 129 + 22 dúfum, Elyass Kristinn Bouanba MAV, á 109 + 19 dúfum í öðru sæti og Haraldur Holti Líndal MAV, á 92 + 18 dúfum.
Íslandsmótið í Norrænu Trappi á Blönduósi
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2026-07-19T16:58:04+00:00July 19th, 2026|Mót og úrslit|Comments Off on Íslandsmótið í Norrænu Trappi á Blönduósi