Mót 1: Úlfar Sigurbjarnarson SR bætti Íslandsmet sitt í drengjaflokki í 50 metra Prone á Ísafirði.
Í unglingaflokki var í fyrsta sæti Úlfar Sigurbjarnarson SR á nýju Íslandsmeti 601.5 stig. í öðru sæti var Karen Rós Valsdóttir á 580.1 stigi, einungis 0.1 frá sínu núverandi Íslandsmeti.
Í fyrsta sæti var Jón Þór Sigurðsson SK með 624.4 stig. Í öðru sæti var Valur Richter með 610.7 og þriðji Sigurbjörn Gunnarsson SR með 607.7 stig sem er hans besti árangur.
Mót 2: Úlfar Sigurbjarnarson úr SR setti nýtt Íslandsmet fullorðinna og Íslandsmet unglinga þegar hann náði 562 stigum í 50 m Þrístöðu á Vestfjarðamótinu á Ísafirði.
Hann bætti Íslandsmet fullorðinna sem Guðmundur Helgi Christensen SR setti árið 2022 upp á 553 stig.
Úlfar var því í fyrsta sæti í unglingaflokki með 562 stig.
Valur Richter SÍ var í fyrsta sæti með 527 stig. Aðalheiður Lára úr SSS í öðru sæti með 512 stig og í þriðja sæti Leifur Bremnes SÍ með 508 stig.