Jón Þór keppti á EM í morgun
Jón Þór Sigurðsson keppti á Evrópumeistaramótinu í 50m riffli (prone) í morgun. Hann hafnaði í 43.sæti með 620,3 stig (104,6-104,3-101,5-103,2-104,4-102,3) Keppendur voru alls 61 að þessu sinni.
Íslenska liðið lauk keppni á EM í dag
Íslenska liðið í skeet lauk keppni á Evrópumeistaramótinu í dag. Það hafnaði í 14.sæti með 200 stig og skiptist skorið þannig að Hákon var með 72 stig (24-24-24), Pétur með 64 stig (19-24-21) og Stefán [...]
Evrópumeistaramót í haglabyssu á Kýpur
Keppni á Evrópumeistaramótinu í haglabyssu stendur nú yfir í Larnaca á Kýpur. Okkar keppendur eru þeir Hákon Þ. Svavarsson, Pétur Gunnarsson og Stefán Gísli Örlygsson. Þeir keppa í Skeet bæði í einstaklingskeppninni sem og liðakeppni. [...]
Íslandsmótið í Norrænu Trappi á Blönduósi 24.-25.sept.2022
Íslandsmótið í haglabyssugreininni Norrænu Trappi verður haldið á Blönduósi dagana 24.-25.september 2022. Mótinu var frestað í ágúst en hefur nú verið sett á dagskrá. Þátttökufrestur er einsog á öllum STÍ mótum, 5 virkir dagar fyrir [...]
Frá skotfélaginu á Blönduósi
Frá Markviss Í ljósi þeirra skelfilegu atburða sem hafa átt sér stað í okkar friðsæla samfélagi vill stjórn Skotfélagsins Markviss votta öllum sem eiga um sárt að binda sína dýpstu meðaumkun og samúð. Eins og [...]
Íslandsmótinu í Norrænu Trappi frestað
Íslandsmótinu í Norrænu Trappi, sem halda átti um næstu helgi á Blönduósi, hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Stefán Gísli sigraði á Landsmótinu um helgina
Síðasta Landsmót STÍ sumarsins fór fram á velli Skotfélags Akraness um helgina. Heimamaðurinn Stefán Gísli Örlygsson sigraði, Jakob Þór Leifsson úr SÍH varð annar og í þriðja sæti varð Daníel L. Heiðarsson úr SA. Einn [...]
Íslandsmótið i Benchrest á Húsavík
Íslandsmótinu í Bench rest lauk í dag á Húsavík. Íslandsmeistari varð Jóhannes Frank Jóhannesson úr Skotdeild Keflavíkur, Kristbjörn Tryggvason úr Skotfélagi Akureyrar varð annar og þriðji, Egill þór Ragnarsson úr Skotfélagi Reykjavíkur. Nánar á úrslitasíðu [...]
Íslandsmótinu í skeet er lokið á Álfsnesi
Íslandsmeistaramótið í haglabyssugreininni Skeet fór fram á skotvelli Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi. Undanþága fékkst hjá Umhverfisráðherra til að geta haldið mótið á svæðinu, þar sem starfsleyfisumsókn félagsins hefur ekki verið afgreidd hjá Heilbrigðsieftirliti Reykjavíkurborgar. Mótið [...]
Íslandsmót um helgina
Um helgina verða tvö Íslandsmót í gangi, í Reykjavík er það Íslandsmeistaramótið í haglabyssugreininni Skeet, sem fer fram á velli Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi, og svo á Húsavík í riffilkeppninni BenchRest, velli Skotfélags Húsavíkur. Á [...]












