Opið er fyrir umsóknir úr Ferðasjóði íþróttafélaga fyrir keppnisferðir innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2019.

Frestur til að skila inn umsóknum er til miðnættis mánudaginn 13. janúar 2020.

Umsóknir eru sendar í gegnum rafrænt umsóknarsvæði sjóðsins sem má finna með því að smella hér.

Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2018.

Til úthlutunar eru 127 milljónir króna. Styrkir úr sjóðnum verða greiddir út í febrúar/mars.
Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send.

Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra.

Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is.