Á Landsmóti Skotíþróttasmbands Íslands í haglabyssugreininni Skeet, sem haldið var á Akranesi um helgina, setti Helga Jóhannsdóttir úr Skotíþróttafélagi Suðurlands nýtt Íslandsmet 101 stig. Hún átti sjálf fyrra metið sem var 100 stig. Í karlaflokki jafnaði svo Sigurður Unnar Hauksson úr Skotfélagi Reykjavíkur Íslandsmetið 121 stig. Í úrslitum í karlaflokki sigraði Stefán Gísli Örlygsson úr Skotfélagi Akraness með 53 stig, Hákon Þór Svavarsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands varð annar með 51 stig og í þriðja sæti hafnaði Sigurður Unnar Hauksson úr Skotfélagi Reykjavíkur með 41 stig. Daníel Logi Heiðarsson úr Skotfélagi Akureyrar hlaut gullið í unglingaflokki með 89 stig.

Í kvennakeppninni sigraði Helga Jóhannsdóttir úr Skotíþróttafélagi Suðurlands með 39 stig, María Rós Arnfinnsdóttir úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar varð önnur með 38 stig og í þriðja sæti Þórey Inga Helgadóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 30 stig.

Í liðakeppni karla sigraði sveit Skotfélags Reykjavíkur (Sigurður Unnar Hauksson,Pétur T. Gunnarsson og Þorgeir Már Þorgeirsson) með 332 stig, önnur varð sveit Skotíþróttafélags Suðurlands (Hákon Þ.Svavarsson,Jakob Þ.Leifsson og Aðalsteinn Svavarsson) með 321 stig og í þriðja sæti sveit Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar (Marinó Eggertsson,Hörður S. Sigurðsson og Arnfinnur A.Jónsson) með 299 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ.