Nú er Landskamp í haglabyssugreininni Norrænu Trappi lokið að þessu sinni og keppendur komnir heim eftir góða ferð til Danmerkur. Landskamp fór að þessu sinni fram í bænum Grindsted sem er skammt frá Billund á Jótlandi. Mótssetning var 8.15 á föstudagsmorgni og keppni hófst kl. 9.00. Skotnar voru 4 umferðir og að þeim loknum var sameiginlegur kvöldverður á skotsvæðinu. Seinni keppnisdag gekk á með alvöru skúrum og blés duglega, semsagt ekta íslenskar aðstæður að því undanskyldu að hiti var ágætur eða um og yfir 20 gráður. Skotnar voru síðustu 2 umferðirnar og svo í framhaldi úrslit í 5 flokkum (V-60, V-50, Senior, Kvenna og Unglinga). Í kvennaflokki var Snjólaug M.Jónsdóttir fjórða inn í final á nýju íslandsmeti,en hún skaut 129/150 og bætti eigið íslandsmet um 3 stig. Hún náði svo að saxa jafnt og þétt á forskot Pernillu Stenson frá Svíþjóð (132/150) í úrslitum og stóðu þær jafnar eftir finalinn og þurfti því að grípa til bráðabana um 3ja sætið. Svo fór að Snjólaug hafði betur í þeirri baráttu og stóð því uppi sem bronsverðlaunahafi,fyrst íslendinga til að komast í úrslit á Landskamp í Nordisk Trap. Gengi annarra keppenda okkar var einnig með ágætum. Haraldur Holti Líndal náði sínu besta skori til þessa 127/150 (hafnaði í 25 sæti í senior) Elyass K. Bouanba skaut 121/150 sem er besta skor hans á árinu (hafnaði í 28 sæti í senior) Jón Axel Hansson endaði á 115/150 sem er næst hæsta skor hans hingað til (senior) Guðmann Jónasson skaut náði sér engan veginn á strik á þessu móti og endaði með 118 stig í 29 sæti (senior). Staðfest úrslit flokka fyrir final https://www.lerduer.net/?stevne=568&meny=resultater&liste_id=2255 Úrslit með final: https://www.lerduer.net/?stevne=568&meny=resultater&liste_id=2270
Snjólaug með brons í landskeppninni í Norrænu trappi
By Guðmundur Kr. Gíslasson|2026-08-25T07:18:51+00:00August 25th, 2026|Erlend mót og úrslit|Comments Off on Snjólaug með brons í landskeppninni í Norrænu trappi