Jón Þór Sigurðsson sigraði á móti í Evrópubikarröðinni sem haldið var í Eskilstuna í Svíþjóð. Keppt var í riffilkeppninni 300 metrar úr liggjandi stöðu með opnum sigtum. Skorið var mjög gott, 597-38x (99-100-99-99-100-1000). Í öðru sæti varð Simon Maag frá Sviss með 596-34x og Geoffroy Hatton frá Frakklandi með 595-31x.