Íslandsmótið í riffilgreininni Benchrest var haldið á Húsavik um helgina.
Skotfélag Húsavíkur þakkar keppendum fyrir frábært mót, og óskar jafnframt Íslandsmeistaranum Jóhannesi Frank til hamingju með titilinn.
Mótið tókst í alla staði mjög vel. Það var keyrt í gegn á einum degi, en alla jafna eru slík mót haldin á tveimur dögum, en veðrið í gær, laugardag, bauð ekki upp á slíkt. Í dag var fallegt veður- bjartviðri og hægir vindar.
Allt mótahald gekk hnökralaust fyrir sig, enda frábærir starfsmenn við stjórn .
Boðið var upp á kjötsúpu að hætti Ásdísar og Jóhannesar Hauks, ásamt pönnukökum og fleira bakkelsi, m. a. frá Dísukaffi á Húsavík.
Skotfelag Húsavíkur vill þakka starfsmönnum sínum þeim Halli, Hermanni, Arnþóri og Guðmm. Halldors fyrir vel unnin störf. Pottþéttir starfsmenn sem aldrei klikka.
Fyrir hönd stjórnar Skotf. Húsavíkur, Gylfi Sigurðsson. Myndir og nánari upplýsingar um skor má nálgast á fésbókarsíðu Skotfélags Húsavíkur.