Átta keppendur frá 2 skotfélögum mættu til leiks, Á laugardeginum var hið þokkalegasta veður og skotnar voru 4 umferðir. Sunnudagurinn byrjaði með úrhellisrigningu og nokkuð sterkum vind. Það stytti svo upp en hvessti og fóru hviðurnar upp í allt að 18m í mótvindi sem gerði það að verkum að hann reif dúfurnar hátt upp. En leikar fóru á þá leið í liðakeppni að lið A lið Markviss (Elyass, Snjólaug, Guðmann) endaði á 318 stigum og B lið Markviss (Ólafur, Jón Axel, Svanur) á 228 stigum. Í unglingaflokki sigraði Ólafur B Hafliðason á 75 dúfum. Sigurvegari mótsins var Guðmann Jónasson á 116+19 dúfum, í öðru sæti Snjólaug M Jónsdóttir á 103+16 og Elyass Kristinn Bouanba á 99+17 dúfum. Alda Albertsdóttir nýliðinn í greininni tók þátt í sínu fyrsta móti og stóð sig með prýði við krefjandi aðstæður. Nánar á úrslitasíðu STÍ